Home Fréttir Í fréttum Ásta til liðs við Verkvistar

Ásta til liðs við Verkvistar

78
0
Ásta til liðs við Verkvistar
Ásta er rafmagnsverkfræðingur með doktorspróf í byggingarverkfræði frá Álaborgarháskóla. Ljósmynd: Aðsend mynd

Ásta til liðs við Verkvistar

Dr. Ásta Logadóttir hefur gengið til liðs við Verkvist sem fagstjóri ljósvistar.

Dr. Ásta Logadóttir hefur gengið til liðs við Verkvist sem fagstjóri ljósvistar. Hún er rafmagnsverkfræðingur með doktorspróf í byggingarverkfræði frá Álaborgarháskóla og hefur áralanga reynslu af rannsóknum og ráðgjöf á sviði ljósvistar.

Hún hefur meðal annars komið að mótun krafna um ljósvist í íslenskri byggingarreglugerð.

Ásta veitir ráðgjöf um dagsbirtu og raflýsingu í nýbyggingum og eldra húsnæði. Hún annast einnig útreikninga og mælingar og metur sólarljós og skuggavarp við skipulagsgerð.

„Við höfum lengi unnið með áhrif bygginga á heilsu og líðan fólks, út frá loftgæðum, raka, efnisvali og byggingareðlisfræði. Með Ástu tengjum við þá þekkingu enn betur við birtu og lýsingu,“ segir Sylgja Dögg, framkvæmdastjóri hjá Verkvist.

Heimild: Vb.is

Efni: Ásta til liðs við Verkvistar