Home Fréttir Í fréttum Fá leyfi til að byggja rándýran leikvang

Fá leyfi til að byggja rándýran leikvang

142
0
Fá leyfi til að byggja rándýran leikvang

Fá leyfi til að byggja rándýran leikvang

Roma hefur fengið formlegt leyfi til að byggja nýjan 60 þúsund manna heimavöll í ítölsku höfuðborginni. Áætlaður kostnaður við framkvæmdina er um 1,4 milljarðar evra.

Völlurinn verður byggður í Pietralata, um tíu kílómetra frá Stadio Olimpico, þar sem Roma spilar heimaleiki sína í dag. Framkvæmdir eiga að hefjast snemma árs 2027 og stefnt er að því að völlurinn verði tilbúinn árið 2029.

Borgarstjórinn Roberto Gualtieri segir nýja völlinn verða stórt skref fyrir fótboltann í borginni og verkefnið muni einnig fela í sér mikla uppbyggingu á svæðinu. Meðal annars verður stór almenningsgarður byggður samhliða vellinum.

Vonast er til þess að nýi völlurinn verði einn af keppnisvöllum EM 2032, sem fer fram á Ítalíu og í Tyrklandi.

Roma mun áfram spila á Stadio Olimpico þar til framkvæmdum lýkur en félagið deilir vellinum með Lazio.

Heimild: DV.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Stuðnings­menn Barcelona þurfa að bíða lengur eftir nýja Nývanginum

Efni: Fá leyfi til að byggja rándýran leikvang