Varaaflsrafstöð fyrir HSN á Blönduósi
Consensa, fyrir hönd Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN), óskar eftir tilboðum í varaaflsrafstöð fyrir HSN á Blönduósi samkvæmt skilmálum útboðslýsingar þessarar. Um er að ræða kaup á fullbúinni dísilknúinni varaaflsrafstöð ásamt tilheyrandi búnaði og kerfum, þ.m.t. stjórnbúnaði, eldsneytiskerfi, loftinntaki og loftútkasti og útblásturskerfi, eftir því sem nánar greinir í útboðsgögnum. Seljandi skal útvega og annast afhendingu, uppsetningu, tengingar sem falla undir hans verksvið, prófanir og gangsetningu búnaðarins og skila honum fullbúnum til notkunar eigi síðar en 130 almanaksdögum frá samþykki tilboðs.
Consensa vekur athygli á að auglýstir tilboðsfrestir geti tekið breytingum og að breytingar séu tilkynntar í útboðskerfinu.
| Útboðsgögn afhent: | 29.09.2026 kl. 00:00 |
| Skilafrestur | 29.10.2026 kl. 12:00 |
| Opnun tilboða: | 29.10.2026 kl. 12:05 |












