Home Fréttir Í fréttum Tæplega hálfs milljarðs skattalagabrot verktaka

Tæplega hálfs milljarðs skattalagabrot verktaka

80
0
Tæplega hálfs milljarðs skattalagabrot verktaka
Skattalagabrotin tengjast rekstri fjölda verktakafyrirtækja. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tæplega hálfs milljarðs skattalagabrot verktaka

Þrír karlmenn á aldrinum 35 til 50 ára hafa verið ákærðir af embætti héraðssaksóknara fyrir umfangsmikil skattabrot í rekstri nokkurra verktakafyrirtækja á árunum 2017 til 2024. Samtals er um að ræða tæplega hálfs milljarðs skattalagabrot sem skiptist niður á þrjú félög og óuppgefnar tekjur tveggja mannanna.

Einn þeirra virðist vera í aðalhlutverki en hann kemur að rekstri flestra félaganna og er einnig með hæstu upphæðina þegar kemur að eigin skattaundanskoti. Saksóknari fer fram á atvinnurekstrarbann yfir öllum þremur.

Rúmlega 220 milljónir tengdar einu fyrirtækjanna

Stærsta einstaka málið tengist rekstri verktakafyrirtækis á árunum 2017–2020. Er aðalmaðurinn þar ákærður fyrir að hafa skilað röngum skattframtölum og oftalið rekstrargjöld frá tveimur öðrum verktakafyrirtækjum sem hinir mennirnir stýrðu. Samtals var um að ræða 110 reikninga með oftalin rekstrargjöld upp á 273,7 milljónir, en í ákæru málsins segir að um ranga og tilhæfulausa reikninga sé að ræða. Þar með hafi tekist að offramtelja innskatt upp á 100,8 milljónir.

Jafnframt er maðurinn ákærður fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti upp á 78,9 milljónir og opinberum gjöldum upp á 43,9 milljónir fyrir sama fyrirtæki.

Hinir mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa staðið að og gefið út fyrrnefnda tilhæfulausa reikninga frá tveimur fyrirtækjum til fyrrnefnda fyrirtækisins. Eru þeir sagðir hafa liðsinnt höfuðpaurnum í verki og veitt atbeina við framkvæmd skattalagabrotanna.

Færði sig í næstu fyrirtæki

Eftir að félag höfuðpaursins varð gjaldþrota var hann framkvæmdastjóri og prókúruhafi annars verktakafyrirtækis árin 2021–2023 og er hann jafnframt ákærður fyrir skattalagabrot þess. Í ákærunni segir að hann hafi komist hjá því að greiða virðisaukaskatt upp á 13,7 milljónir og staðgreiðslu opinberra gjalda upp á 52 milljónir.

Það félag varð einnig gjaldþrota og aftur varð maðurinn daglegur stjórnandi og prókúruhafi nýs verktakafyrirtækis. Er hann ákærður fyrir að hafa árið 2024 ekki staðið skil á virðisaukaskatti upp á 42 milljónir og staðgreiðslu opinberra gjalda upp á 28 milljónir.

Gaf ekki upp 200 milljóna tekjur

Að lokum er höfuðpaurinn ákærður fyrir að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum fyrir árin 2018 og 2019 fyrir sjálfan sig. Kemur fram að hann hafi samtals tekið út 201 milljón krónur úr rekstri fyrstnefnda félagsins án þess að telja það fram til tekna. Með því hafi hann komist hjá því að greiða 92,3 milljónir í tekjuskatt og útsvar.

Að lokum er einn hinna mannanna, sá elsti, ákærður fyrir að hafa einnig staðið skil á efnislega röngum skattframtölum á árunum 2017 og 2019. Taldi hann ekki fram greiðslur frá fjórum fyrirtækjum upp á samtals 81,9 milljónir og kom sér þannig hjá því að greiða 36,9 milljónir í skatta.

Þegar allt er tekið saman er um að ræða skattalagabrot upp á 488 milljónir króna í tilvikum allra félaganna og mannanna tveggja.

Saksóknari fer fram á að mennirnir þrír verði allir dæmdir í atvinnurekstrarbann ásamt því sem farið er fram á að þeir verði dæmdir til refsingar.

Málið var þingfest í héraðsdómi í gmorgun.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: 114 milljóna skattalagabrot hjá verktakafyrirtæki

Efni: Tæplega hálfs milljarðs skattalagabrot verktaka