
Ártúnshöfðinn breytir um svip
Ártúnshöfðinn hefur heldur betur breytt um svip eftir að braggaröðin við Þórðarhöfða var rifin fyrr á þessu ári.
Um er að ræða röð tólf sambyggðra bogaskemma með bárujárni, sem byggðar voru á árunum 1966-1979 fyrir Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar.
Fyrstu tíu skemmurnar voru reistar á árunum 1965-1969 en tveimur var bætt við árið 1979 við enda NA-enda lengjunnar skv. fasteignaskrá. Skemmurnar tvær voru notaðar sem saltgeymslur. Við NA-hlið nyrstu skemmunnar voru tankar og pækilstöð reist árið 2006.
Ákveðið var að rífa alla braggana nema tvo að svo stöddu en þeir eru nýttir sem geymslur. Framtíðaráform séu þó að ljúka því og rífa þá alla.
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Samfélag myndast á Ártúnshöfða
Efni: Ártúnshöfðinn breytir um svip











