Home Fréttir Í fréttum Bláa lónið kaupir tugi smáhýsa af BYKO

Bláa lónið kaupir tugi smáhýsa af BYKO

161
0
Bláa lónið kaupir tugi smáhýsa af BYKO
Sigríður Margrét Oddsdóttir og Sigurður Brynjar Pálsson ásamt Magnúsi Orra Marínarsyni Schram, Baldri Helga Snorrasyni, Hartmanni Kárasyni, Jóni Bjarna Jóhannssyni, German Castillo og Eggerti Kristinssyni. Ljósmynd: Aðsend mynd

Bláa lónið kaupir tugi smáhýsa af BYKO

Bláa lónið og BYKO hafa undirritað kaupsamning um kaup Bláa lónsins á 21 smáhýsi í Þjórsárdal.

Bláa lónið og BYKO hafa undirritað kaupsamning um kaup Bláa lónsins á 21 smáhýsi frá BYKO. Húsin eru sögð liður í uppbyggingu Bláa lónsins í Þjórsárdal en samkvæmt tilkynningu er um að ræða eina umfangsmestu fjárfestingu í íslenskri ferðaþjónustu.

Verkefnið í Þjórsárdal nær meðal annars til Fjallabaðanna og hótelsins Mountain Retreat í Rauðukömbum, sem að hluta til verður grafið inn í fjallshlíðina, Gestastofu Þjórsárdals, auk smáhýsanna og tjaldsvæðis við Selhöfða.

Húsin, sem verða alls 40 þegar framkvæmdum lýkur, munu rísa í skóglendi við Sandá og eiga að opna sumarið 2027 en fjallaböðin sjálf verða svo tilbúin ári seinna. Gestum munu standa til boða þrjár gerðir húsa, meðal annars hús með kojum.

Smáhýsin eru framleidd í verksmiðju systurfyrirtækis BYKO í Lettlandi og koma fullbúin til landsins, með innréttingum og hreinlætisaðstöðu, tilbúin til uppsetningar. BYKO hefur um árabil selt slík hús hér á landi, bæði til einstaklinga og ferðaþjónustufyrirtækja.

Fyrirtækin tvö hafa áður unnið saman, meðal annars við Blue Lagoon Retreat-hótelið í Svartsengi, í Kerlingarfjöllum og við breytingar á Fontana við Laugarvatn.

„Við höfum frá upphafi lagt áherslu á metnað og fagmennsku í Þjórsárdal og þess vegna lá beinast við að vinna með BYKO. Húsin rísa í fallegu skóglendi við Sandá og styrkja vel fjölbreytt framboð gistingar í Þjórsárdal,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins.

Heimild: Vb.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Bláa lónið byggir upp í Þjórsárdal

Efni: Bláa lónið kaupir tugi smáhýsa af BYKO