Armar hagnast um 780 milljónir
Samanlagt nemur hagnaður áranna 2022-2025 tæplega 3,4 milljörðum króna.
Armar ehf. hagnaðist um 780 milljónir króna í fyrra, samanborið við 851 milljón árið 2024. Félagið sérhæfir sig í útleigu vinnuvéla og tengdum rekstri. Samanlagt nemur hagnaður áranna 2022-2025 tæplega 3,4 milljörðum króna.
Samstæða Arma velti 4.165 milljónum í fyrra, sem var aukning um rúm 4% milli ára. Rekstrargjöld námu 1.832 milljónum, sem er 3% aukning milli ára. Í ársreikningi segir að Armar ehf. og dótturfélög hafi náð góðum árangri á undanförnum árum og að vænta megi þess að svo verði áfram að öllu óbreyttu en velgengni samstæðunnar byggist að miklu leyti á stöðu byggingageirans hverju sinni.
m
Eignir samstæðunnar voru bókfærðar á 9.766 milljónir í lok árs 2025, samanborið við 8.676 milljónir árið áður, og eigið fé nam 5.292 milljónum, samanborið við 4.512 milljónir í lok árs 2024. Stjórn leggur til a ekki verði greiddur arður til hluthafa í ár. Auðunn Svafar Guðmundsson er stærsti hluthafinn með samtals 82,5% hlut en Ása Sigríður Þrastardóttir á eftirstandandi hlut.
Heimild: Vb.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Hafa hagnast um 2,6 milljarða á þremur árum
Efni: Armar hagnast um 780 milljónir












