Home Fréttir Í fréttum Samið um niðurrif leikskólans

Samið um niðurrif leikskólans

216
0
Samið um niðurrif leikskólans
Ástand byggingarinnar er ekki beysið og ekkert annað að gera en rífa hana. Nýr og nútímalegur leikskóli mun rísa á lóðinni í fyllingu tímans. Morgunblaðið/sisi

Samið um niðurrif leikskólans

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur hefur ákveðið að ganga að tilboði fyrirtækisins H2Orku ehf. um niðurrif á leikskólanum Laugasól við Leirulæk.

Tilboðið hljóðaði upp á rúmar 25 milljónir. Var það aðeins 35% af kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á 71,2 milljónir.

Önnur tilboð voru einnig langt undir kostnaðaráætlun. Fagurverk ehf. bauð tæpar 29 milljónir og Berserkir ehf. rúmar 34 milljónir.

Borgarráð samþykkti í desember 2024 að heimila umhverfis- og skipulagssviði að hætta framkvæmdum og segja upp verksamningi við verktaka um viðgerðir og endurbætur á leikskólanum Laugasól, Leirulæk 6.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Þrjú tilboð í niðurrif Laugasólar – lægsta tilboð aðeins 35% af kostnaðaráætlun

Sjá frétt: Samið um niðurrif leikskólans