
14 vindmyllur gangsettar við Vaðöldu
Fyrsti áfangi Vaðölduvers í Rangárþingi ytra var gangsettur í gær, 15. september, þegar raforka frá nýju vindmyllunum fór að skila sér inn á flutningskerfi Landsnets. Fjórtán vindmyllur eru nú risnar og gangsettar en jafnmargar verða reistar á næsta ári. Fullbyggt verður vindorkuverið um 120 MW að afli.
Vaðölduver var formlega gangsett við hátíðlega athöfn á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu í gær. Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra lýsti þá yfir að vindorkuverið væri tilbúið til rekstrar og í kjölfarið hófu vindmyllurnar að skila raforku inn á flutningskerfi Landsnets.
Vaðölduver stendur á hraun- og sandsléttu austan Þjórsár, sunnan við Sultartangastíflu. Þar verða alls 28 vindmyllur, en fyrri 14 eru nú komnar í rekstur. Hinar 14 verða reistar á árinu 2027 og stefnir Landsvirkjun að því að vindorkuverið verði að fullu komið í rekstur fyrir lok næsta árs.

Um 120 MW þegar framkvæmdum lýkur
Vindmyllurnar eru af gerðinni Enercon E-138 EP3 E3 og er uppsett afl hverrar þeirra 4,26 MW. Heildarafl Vaðölduvers verður því rétt tæp 120 MW.
Spaðahringur hverrar vindmyllu er 138 metrar í þvermál og þegar spaði stendur í hæstu stöðu nær mannvirkið um 150 metra hæð.
Landsvirkjun samdi við þýska framleiðandann Enercon um hönnun, framleiðslu, flutning, uppsetningu og prófanir á öllum 28 vindmyllunum. Tilboð fyrirtækisins í verkið var 140 milljónir evra, sem jafngilti rúmum 20 milljörðum króna þegar samningurinn var gerður. Samningnum fylgir jafnframt þjónustusamningur til að minnsta kosti 15 ára.

Þúsundir tonna af stáli og steypu
Mannvirkjagerðin vegna Vaðölduvers hefur verið umfangsmikil.
Samkvæmt Landsvirkjun fóru um 70 tonn af stáli og rúmlega 400 rúmmetrar af steypu í undirstöðu hverrar þeirra 14 vindmylla sem nú eru risnar. Það jafngildir um 980 tonnum af stáli og 5.600 rúmmetrum af steypu í fyrsta áfangann.
Þá vegur hver vindmylla um 582 tonn. Milli vindmyllnanna og safnstöðvar liggja jafnframt umfangsmiklar strengjalagnir og þurft hefur að leggja nýja vegi og skurði innan framkvæmdasvæðisins.
Á verkefnissíðu Landsvirkjunar kemur fram að vegagerð innan framkvæmdasvæðisins sé um 19 kílómetrar og að tugir kílómetra af strengjum séu lagðir vegna framkvæmdarinnar.

Ístak með 6,8 milljarða samning
Ístak hf. annast stóran hluta mannvirkjagerðarinnar vegna Vaðölduvers samkvæmt samningi við Landsvirkjun að fjárhæð rúmlega 6,8 milljarðar króna.
Undir samninginn fellur meðal annars gerð járnbentra steinsteyptra undirstaða undir allar 28 vindmyllurnar, kranastæði, jarðvinna, lagnir og bygging safnstöðvar á svæðinu.
Vegaframkvæmdir við Vaðöldu hófust hins vegar þegar haustið 2024 og kom Borgarverk að þeirri framkvæmd.

Nýtt tengivirki í Ferjufit
Til þess að tengja vindorkuverið við flutningskerfið hefur Landsnet reist nýtt 220 kV tengivirki í Ferjufit, austan Vaðöldu.
Tengivirkið er tengt við Sigöldulínu 3 og vegna framkvæmdarinnar þurfti meðal annars að færa hluta loftlínunnar, reisa ellefu ný möstur og þrjá endaramma auk þess sem níu eldri möstur voru tekin niður.
Vaðölduver rís á stærsta aflsvæði Landsvirkjunar. Á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu eru þegar sjö vatnsaflsstöðvar í rekstri og sú áttunda bætist við þegar Hvammsvirkjun tekur til starfa.

Heimild: Landsvirkjun
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Vaðölduver gangsett í næstu viku
Efni: 14 vindmyllur gangsettar við Vaðöldu











