Home Fréttir Í fréttum Guðmundur Daði ráðinn forstjóri hjá Göng og brú ohf.

Guðmundur Daði ráðinn forstjóri hjá Göng og brú ohf.

100
0
Guðmundur Daði ráðinn forstjóri hjá Göng og brú ohf.
Guðmundur Daði Rúnarsson. mbl.is/Karítas

Guðmundur Daði ráðinn forstjóri hjá Göng og brú ohf.

Innviðafélagið Göng og brú ohf. hefur ráðið Guðmund Daða Rúnarsson í starf forstjóra félagsins.

Í tilkynningu kemur fram að ákvörðun um ráðninguna hafi verið tekin af stjórn félagsins að undangengnu opnu ráðningarferli.

Göng og brú er sjálfstætt rekstrar-, fjármögnunar- og eignarhaldsfélag í eigu íslenska ríkisins. Tilgangur félagsins er að flýta fyrir þjóðhagslega mikilvægum samgönguframkvæmdum, skapa farveg fyrir stöðuga fjármögnun slíkra verkefna og tryggja hagkvæma, faglega og skilvirka verkefnastjórn við undirbúning og framkvæmd þeirra.

Fram kemur í tilkynningunni að Guðmundur búi yfir víðtækri reynslu af stjórnun, stefnumótun og framkvæmd umfangsmikilla innviðaverkefna og komi til félagsins frá Isavia þar sem hann starfaði sem framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli.

Líst vel á upplegg ríkisstjórnarinnar

„Ég er þakklátur fyrir traustið og hlakka til að leiða innviðafélagið Göng og brú. Mér líst vel á upplegg ríkisstjórnarinnar um að flýta uppbyggingu á stærri samgönguinnviðum með þessum hætti. Þá tel ég að reynsla mín frá Isavia af því að leiða uppbyggingu innviða og ljúka framkvæmdum á réttum tíma, og á kostnaðaráætlun, muni nýtast vel á þessum nýja vettvangi,“ er haft eftir Guðmundi Daða Rúnarssyni í tilkynningunni.

Göng og brú hafa boðað til kynningar- og markaðsdags í Hörpu þann 17. september klukkan 13:30 þar sem hlutverk og tilgangur félagsins verða kynnt nánar.

Þar mun Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flytja ávarp þar sem fjallað verður um stofnun, umboð og framtíðarsýn stjórnvalda í uppbyggingu innviða og hvert hlutverk félagsins er í þeirri uppbyggingu.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS : Hefjast handa við að stækka flugvöllinn um tuttugu þúsund fermetra

Efni: Guðmundur Daði ráðinn forstjóri hjá Göng og brú ohf.