Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir á Laugalandi 100 milljónum fram úr áætlun

Framkvæmdir á Laugalandi 100 milljónum fram úr áætlun

192
0
Framkvæmdir á Laugalandi 100 milljónum fram úr áætlun

Framkvæmdir á Laugalandi 100 milljónum fram úr áætlun

Kostnaður vegna viðhalds- og endurbótaframkvæmda á Laugalandi í Holtum er nú áætlaður um 240 milljónir króna, eða um 100 milljónum króna meiri en upphafleg fjárfestingar- og viðhaldsáætlun gerði ráð fyrir.

Kostnaðurinn hefur því hækkað um rúmlega 71% frá upphaflegri áætlun.

Stjórn Húsakynna bs. samþykkti á fundi sínum 8. september að óska eftir 100 milljóna króna viðbótarfjármagni vegna framkvæmdanna. Húsakynni er byggðasamlag Rangárþings ytra og Ásahrepps.

Fram kemur í fundargerð stjórnarinnar að fyrir hafi legið minnisblað, dagsett 31. ágúst, þar sem gerð er grein fyrir framvindu, umfangi og áætluðum heildarkostnaði framkvæmdanna árið 2026.

Úr 140 milljónum í 240 milljónir

Á vordögum samþykktu eigendur Laugalandsskóla að ráðast í framkvæmdir og viðhald til að bæta aðstöðu á Laugalandi.

Upphaflega var gert ráð fyrir að verkefnið kostaði um 140 milljónir króna og sérstakur verkefnastjóri var ráðinn til að halda utan um framkvæmdirnar.

Í bókun fulltrúa D-lista í sveitarstjórn Rangárþings ytra kemur fram að staða framkvæmda og tímalína hafi verið yfirfarin á fundi stjórnar Húsakynna 1. júlí.

Þá hafi ekkert komið fram sem benti til annars en að verkefnið yrði innan fjárhagsáætlunar.

Þegar stjórn Húsakynna fundaði aftur 20. ágúst hafi hins vegar komið í ljós að kostnaður væri að nálgast 240 milljónir króna, eða um 100 milljónum umfram fjárheimildir.

Fulltrúarnir segja jafnframt að engar viðvaranir hafi borist stjórninni um slíka kostnaðarþróun fram að því.

Kalla eftir ítarlegu kostnaðaruppgjöri

Stjórn Húsakynna samþykkti samhljóða að óska eftir 100 milljóna króna viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 og vísa beiðninni til sveitarstjórna Rangárþings ytra og Ásahrepps.

Jafnframt leggur stjórnin áherslu á að við verklok liggi fyrir sundurliðað kostnaðaruppgjör einstakra verkþátta.

Stjórnin vill einnig að þegar verði hafin vinna við framtíðarsýn fyrir Laugaland í samvinnu við notendur svæðisins. Markmiðið sé meðal annars að framtíðarframkvæmdir verði betur undirbúnar og haldist innan samþykktra áætlana.

Fjármagna viðaukann með lántöku

Sveitarstjórn Rangárþings ytra tók málið fyrir 9. september og samþykkti þann hluta 100 milljóna króna viðaukans sem fellur á sveitarfélagið.

Viðbótarkostnaður sveitarfélagsins verður fjármagnaður með lántöku.

Sveitarstjórnin undirstrikaði jafnframt að við næsta framkvæmdaáfanga á Laugalandi verði fjármögnun tryggð fyrirfram innan samþykkts ramma nýrrar framtíðaráætlunar.

Vilja skoða hvað fór úrskeiðis

Fulltrúar D-lista bókuðu sérstaklega vegna kostnaðaraukningarinnar og telja ýmsar spurningar vakna um undirbúning, áætlanagerð, hönnun, samskipti stjórnenda og verkefnastjórn.

Þeir telja nauðsynlegt að skoða ítarlega hvað hafi farið úrskeiðis og draga lærdóm af framkvæmdinni áður en ráðist verður í frekari framkvæmdir.

Nánari upplýsingar um einstaka kostnaðarliði liggja ekki enn fyrir í birtum fundargerðum. Stjórn Húsakynna hefur óskað eftir frekari gögnum fyrir næsta fund, sem fyrirhugaður er 28. september.

Málið hefur einnig verið tekið upp af Morgunblaðinu, sem greindi frá kostnaðaraukningunni 10. september.

Heimild: Rangárþings ytra

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Framkvæmdir á Laugalandi í fullum gangi

Efni: Framkvæmdir á Laugalandi 100 milljónum fram úr áætlun