Home Fréttir Í fréttum Grænt ljós á 24.000 fermetra nýtt gagnaver Verne á Ásbrú

Grænt ljós á 24.000 fermetra nýtt gagnaver Verne á Ásbrú

198
0
Grænt ljós á 24.000 fermetra nýtt gagnaver Verne á Ásbrú
Gagnaver Verne Global á Ásbrú Mynd: Haraldur Guðjónsson

 

Grænt ljós á 24.000 fermetra nýtt gagnaver Verne á Ásbrú

Byggingaráform fyrir 23.998 fermetra nýtt gagnaver Verne á Ásbrú í Reykjanesbæ hafa verið samþykkt. Um er að ræða næsta stóra áfanga í uppbyggingu gagnavers fyrirtækisins á svæðinu og hefur verkefnið fengið heitið VDC04.

Byggingarfulltrúi Reykjanesbæjar samþykkti áformin á fundi 8. september. Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki III fyrir 23.998 fermetra atvinnuhúsnæði við Valhallarbraut 868 samkvæmt aðaluppdráttum T.ark frá 15. maí 2026.

Byggingarfulltrúi staðfestir að áformin uppfylli gildandi skipulagsskilmála.

Nýja gagnaverið nefnist VDC04

Fyrri gögn Reykjanesbæjar staðfesta að byggingin er nýtt gagnaver Verne.

Verne sótti í sumar um framkvæmdaleyfi vegna jarðvinnu við Valhallarbraut 868. Þar kemur fram að vegna stækkunar gagnavers fyrirtækisins á Ásbrú hyggist Verne reisa VDC04 á um 24.000 fermetra svæði austan við núverandi starfsemi. Skipulagsráð samþykkti framkvæmdaleyfið.

Þar með er verkefnið komið nokkuð langt í undirbúningi. Framkvæmdaleyfi fyrir jarðvinnu liggur fyrir og nú hafa byggingaráform sjálfrar 23.998 fermetra byggingarinnar verið samþykkt.

Verkefnið færist þannig frá skipulags- og jarðvinnustigi yfir í undirbúning byggingarframkvæmda.

Tvær byggingar sameinaðar í eitt stórt gagnaver

VDC04 felur jafnframt í sér breytingu frá eldri áformum Verne á þessum hluta lóðarinnar.

Í stað tveggja aðskildra byggingarreita, 401 og 501, var sótt um að sameina reitina í einn stærri byggingarreit. Samhliða var heildarbyggingarheimild á skipulagsreitnum minnkuð úr 77.100 fermetrum í 71.531 fermetra. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í apríl að auglýsa þá breytingu.

Hljóðvistarskýrsla COWI, sem fylgdi skipulagsbreytingunni, lýsir uppbyggingunni enn nánar. Þar kemur fram að áður hafi verið gert ráð fyrir tveimur gagnaversbyggingum á reitunum en að ný áform geri ráð fyrir að starfsemin verði sameinuð í einni stórri byggingu á um 24.000 fermetra svæði.

Allt að 120 MW aflþörf samkvæmt hljóðvistargögnum

Umfang verkefnisins sést einnig á orku- og tæknibúnaði sem fyrirhugaður er vegna uppbyggingarinnar.

Í hljóðvistarskýrslu COWI kemur fram að kælibúnaði og varaaflsvélum verði komið fyrir utan við nýju bygginguna, bæði norðan og sunnan hennar.

Þar segir jafnframt að gert sé ráð fyrir 100% varaaflsgetu á staðnum, þannig að gagnaverið geti haldið starfsemi áfram óháð truflunum í raforkukerfinu. Áætluð aflþörf uppbyggingarinnar geti orðið allt að 120 MW, samkvæmt forsendum hljóðvistarmatsins.

Samhliða VDC04 eru uppi áform um stækkun annars reits um 3.437 fermetra til að skapa rými fyrir frekari kælibúnað, varaaflsvélar og annan tæknibúnað. Þar er meðal annars gert ráð fyrir 15 kælieiningum og 15 varaaflsvélum.

Verne undirbýr stórt innviðaverkefni á Íslandi

Verne hefur sjálft gefið skýrar vísbendingar um umfang þeirrar uppbyggingar sem er fram undan.

Fyrirtækið hélt sérstakan Supplier Information Day 20. ágúst vegna „major new infrastructure development in Iceland“ og kallaði sérstaklega eftir íslenskum verktökum, ráðgjöfum og birgjum sem gætu tekið þátt í framkvæmdunum.

Meðal þeirra verkþátta sem Verne nefndi voru jarðvinna, steypu- og burðarvirki, vegagerð og lóðarinnviðir, vél- og rafkerfi, háspennumannvirki, byggingartækni, flutningar og sérhæfður gagnaversbúnaður. Fyrirtækið sagðist leggja sérstaka áherslu á þátttöku íslenskra og staðbundinna birgja.

Gagnaverssvæðið getur tekið yfir 140 MW

Verne rekur gagnaverssvæði sitt á fyrrum varnarsvæðinu á Ásbrú. Samkvæmt upplýsingum fyrirtækisins er svæðið um 16 hektarar og heildarafkastageta þess er tilgreind sem yfir 140 MW.

Gagnaverið nýtir endurnýjanlega íslenska raforku og Verne markaðssetur svæðið sérstaklega fyrir afkastamikla tölvuvinnslu og gervigreind. Fyrirtækið segir að innviðirnir styðji meðal annars mjög aflþétta tölvubúnaði og beina vökvakælingu.

Samþykki byggingaráforma fyrir VDC04 er því stórt nýtt skref í áframhaldandi uppbyggingu gagnaverssvæðisins á Ásbrú.

Heimild: Reykjanesbær

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Gætu skapað þúsund störf

Efni: Grænt ljós á 24.000 fermetra nýtt gagnaver Verne á Ásbrú