
Stórt íþróttahús er reist í Árnesi
Við Árnes í Skeiða- og Gnúpverjahreppi á Suðurlandi eru nú á lokastigi framkvæmdir við byggingu nýrrar íþróttamiðstöðvar sem verður tekin í notkun í næsta mánuði.
Þetta er eitt stærsta hús sinnar gerðar sem reist hefur verið í dreifbýlinu, en hugsunin með þessu er að skapa aðstöðu sem nýtist íbúum til langrar framtíðar, segir Haraldur Þór Jónsson oddviti sveitarfélagsins.
Að grunnfleti er húsið rúmir 2.700 fermetrar og þar af er íþróttasalurinn 1.350 fermetrar. Samtals er húsið 3.618 fermetrar, þar af allstórt rými á efri hæð sem bíður ráðstöfunar. Einnig er verið að byggja tengibyggingu á milli íþróttahússins og skólabyggingarinnar, enda er í nýju íþróttamiðstöðinni stór matsalur og tilheyrandi stóreldhús.
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Opnun tilboða í loftræstikerfi í íþróttamiðstöð í Árnesi
Efni: Stórt íþróttahús er reist í Árnesi











