Home Fréttir Í fréttum Aukið hlutafé vegna Fljótaganga til skoðunar

Aukið hlutafé vegna Fljótaganga til skoðunar

54
0
Aukið hlutafé vegna Fljótaganga til skoðunar
Siglufjörður. mbl.is/Sigurður Bogi

Aukið hlutafé vegna Fljótaganga til skoðunar

Til að innviðafélagið Göng og brú geti tekið að sér ábyrgð á fjármögnun og framkvæmd Fljótaganga kemur til skoðunar að auka við hlutafé félagsins þannig að það hafi fjárhagslega burði til að standa undir verkefninu og hraða framvindu þess.

Hlutafjáraukningin gæti verið í formi reiðufjár sem nemur hluta af stofnkostnaði verkefnisins eða annarra tekjuberandi eigna.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins um heimildir fjármála- og efnahagsráðherra í tengslum við fjármálafrumvarpið fyrir árið 2027, þar sem segir að umrædd heimild ráðherra í tengslum við innviðafélagið sé ný af nálinni. Henni er ætlað að auka við hlutafé félagsins til að auka fjárfestingagetu þess til að standa undir fjármögnun og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja.

„Fyrir liggur að horft er til þess að meðal fyrstu verkefna félagsins í fyrirhuguðum samningi verði að standa fyrir fjármögnun Ölfusárbrúar, sem að öðrum kosti þarf að vera fjármagnað að fullu af ríkissjóði árið 2028 við afhendingu, og framkvæmd Fljótaganga sem stefnt er að því að hefjist á seinni hluta ársins 2027,” segir á vefnum.

Fljótagöng voru efst á forgangslista samgönguáætlunar en þau tengja saman Siglufjörð og Fljótin. Göngin verða 5,3 km löng, að því er kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Fljótagöng sett í for­gang

Efni: Aukið hlutafé vegna Fljótaganga til skoðunar