
Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag
„Hér er kominn nýr kafli í baðupplifun á Íslandi ,“ segir Jóhanna Hreiðarsdóttir, framkvæmdastjóri Reykjabaðanna við rætur Reykjadals í Hveragerði sem opnuð verða í dag.
Verkefni þetta hefur verið á teikniborðinu í rúm fimm ár en framkvæmdin sjálf hefur tekið um tvö ár.
Á þeim tíma hefur það undið upp á sig. Baðlónið var stækkað, meira lagt í upplifanir og byggingu baðhúss ásamt uppbyggingu á glæsilegum veitingastað.
Fjárfestingin hefur því aukist á framkvæmdatímanum og stendur nú í um það bil fjórum milljörðum króna.
Lesa má meira um málið á blaðsíðu 24 í Morgunblaðinu í dag.
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS : Stefna á að opna nýju böðin í sumar
Efni: Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag





























