Home Fréttir Í fréttum BMW og MINI fá sínar eigin höfuðstöðvar

BMW og MINI fá sínar eigin höfuðstöðvar

125
0
BMW og MINI fá sínar eigin höfuðstöðvar
Húsnæðið er byggt samkvæmt Retail.Next-hugmyndafræði BMW, þar sem áherslan færist frá hefðbundinni bílasölu yfir í opnara umhverfi og heildstæðari upplifun viðskiptavina. Ljósmynd: Aðsend mynd

BMW og MINI fá sínar eigin höfuðstöðvar

Framkvæmdir standa nú yfir við byggingu nýrra höfuðstöðva undir BMW og MINI á Íslandi við Hestháls 10 í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að byggingin verði tekin í notkun snemma á næsta ári. Verkefnastjóri er Gunnar Már Gunnarsson, framkvæmdastjóri EGG-fasteigna sem byggja húsið fyrir BL ehf.

Knútur Steinn Kárason, nýráðinn framkvæmdastjóri BMW og MINI á Íslandi, segir að alls verði byggingin um 1.600 fermetrar með sýningarsal, setustofum, þjónustuverkstæði, varahlutasölu og annarri nauðsynlegri stoðþjónustu sem fylgir rekstrinum.

Húsnæðið er byggt samkvæmt „Retail.Next“ hugmyndafræði BMW, sem snýst í meginatriðum um að færa áhersluna frá hefðbundinni bílasölu yfir í heildstæða upplifun viðskiptavina af BMW og MINI, þar sem sýningarsalurinn verður ekki lengur fyrst og fremst staður þar sem sölumaður situr við skrifborð og selur bíl.

Heimild: Vb.is
Efni: BMW og MINI fá sínar eigin höfuðstöðvar