Home Fréttir Í fréttum Hæstiréttur heimilar Trump að klára veislusalinn

Hæstiréttur heimilar Trump að klára veislusalinn

33
0
Hæstiréttur heimilar Trump að klára veislusalinn
Austurálma Hvíta hússins var rifin svo byggja mætti veislusal Trump. EPA – WILL OLIVER

Hæstiréttur heimilar Trump að klára veislusalinn

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur heimilað Donald Trump forseta Bandaríkjanna að halda áfram með byggingu veislusalar á lóð Hvíta hússins. Framkvæmdirnar hlutu naumt samþykki fimm dómara af níu.

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur heimilað Donald Trump Bandaríkjaforseta að halda áfram með byggingu veislusalar á lóð Hvíta hússins.

Fimm dómarar réttarins heimiluðu áframhaldandi framkvæmdir en fjórir lögðust gegn þeim. John Roberts, sem flokkast sem íhaldssamur dómari hæstaréttar Bandaríkjanna, lagðist gegn leyfinu. Hann taldi framkvæmdirnar líklegast ekki löglegar þar sem nauðsynlegt væri að fá leyfi fyrir þeim frá bandaríska þinginu.

Dómari Hæstaréttar hafði áður veitt tímabundna heimild til áframhaldandi framkvæmda.

Samtök sem berjast fyrir verndun sögulegra minja í Bandaríkjunum (The National Trust for Historic preservation) höfðuðu mál vegna framkvæmdanna og töldu forsetann ekki hafa nægilegar valdheimildir til þess að halda mætti áfram með framkvæmdirnar.

Umdeilt hefur verið að Trump fyrirskipaði að rífa ætti hina sögufrægu austurálmu Hvíta hússins svo byggja mætti veislusalinn. Trump hefur ítrekað sagt að veislusalurinn sé gjöf til bandarísku þjóðarinnar.

Áfrýjunardómstóll úrskurðaði fyrr í mánuðinum að ekki mætti halda framkvæmdum ofanjarðar áfram nema með samþykki öldungadeildar þingsins.

Áætlað er að framkvæmdum ljúki í ágúst árið 2028.

Heimild: Ruv.is

Efni: Hæstiréttur heimilar Trump að klára veislusalinn