Vöruhús Beru hf á Hólmsheiði – Alútboð
JTV fyrir hönd Beru hf, kt. 420369-7789, auglýsir eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu alútboði vegna hönnunar og byggingar á um 23.000 m2 vöruhúsi á Hólmsheiði í Reykjavík.
Verkið felur í sér fullnaðarhönnun og byggingu á vöruhúsi sem mun m.a. hýsa sjálfvirkt vöruhús, kæli- og frystigeymslur, vörumóttöku og skrifstofur.
Helstu verkþættir eru:
- Fullnaðarhönnun húss og lóðar
- Aðstöðusköpun og jarðvinna
- Uppsteypa og reising burðarvirkis
- Frágangur utanhúss
- Frágangur innanhúss, þ.m.t. rafkerfi, lagnakerfi og kæli- og frystikerfi
- Frágangur lóðar
Forvalsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með 31. ágúst 2026. Áhugasamir skulu hafa samband við Fjalar Hauksson hjá JTV ehf. með því að senda tölvupóst á netfangið fjalar@jtv.is og gefa upp nafn, nafn fyrirtækis, síma og netfang og fá í kjölfarið aðgang að forvalsgögnum.
Skilafrestur umsókna er 28. september 2026, klukkan 13.
Heimild: Bera hf.
Efni: Vöruhús Beru hf á Hólmsheiði – Alútboð












