
Tvö tilboð bárust í stækkun skólans
Tvö tilboð bárust í stækkun Seyðisfjarðarskóla og eru bæði yfir kostnaðaráætlun. Gert er ráð fyrir rúmlega 939 milljóna króna kostnaði við verkið en tilboðin sem liggja fyrir eru bæði yfir milljarði.
Málið verður tekið fyrir og tilboðin skoðuð í umhverfis- og framkvæmdaráði Múlaþings í dag að sögn Þórhildar Katrínar Stefánsdóttur formanns.
Annað tilboðið kom frá MVA og var heildarupphæð með virðisaukaskatti 1.163.575.982 krónur. Hitt tilboðið kom frá Eðalmönnum ehf. Heildartilboðsfjárhæð var 1.062.594.657 krónur.
„Þvert á flokka erum við spennt að sjá nýjan skóla rísa á Seyðisfirði enda er um að ræða eina stærstu framkvæmd sem ráðist hefur verið í frá sameiningu,“ segir Þórhildur við Morgunblaðið.
Heimild: Mbl.is
Efni: Tvö tilboð bárust í stækkun skólans











