Home Fréttir Í fréttum Selja þrjár sögu­frægar fast­eignir í miðbænum

Selja þrjár sögu­frægar fast­eignir í miðbænum

112
0
Selja þrjár sögu­frægar fast­eignir í miðbænum
Kaldalón seldi m.a. Hús Bernhöfts bakara að Bankastræti 2 og Gimli að Lækjargötu 3. Ljósmynd: Aðsend mynd

Selja þrjár sögu­frægar fast­eignir í miðbænum

Kaldalón selur þrjár friðlýstar eignir að Amtmannsstíg 1, Bankastræti 2 og Lækjargötu 3.

Kaldalón fasteignafélag lauk í byrjun júní kaupum á tíu fasteignum FÍ fasteignafélags fyrir ríflega 12,3 milljarða króna. Samkvæmt nýbirtu árshlutauppgjöri seldi Kaldalón þrjár af umræddum eignum aftur í sumar.

Um er að ræða fasteignir að Amtmannsstíg 1, Bankastræti 2 og Lækjargötu 3. Allar þrjár eignirnar eru friðlýstar. Auk þess seldi Kaldalón 668 fermetra fasteign að Hjalteyrargötu 8 á Akureyri. Samtals nam söluverð þessara fjögurra eigna 1,5 milljörðum króna.

„Fjórar fasteignir voru seldar á öðrum ársfjórðungi, þar af þrjár sem keyptar voru innan tímabilsins. Þær eignir hentuðu ekki uppbyggingu eignasafnsins til lengri tíma,“ segir Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns. „Þetta er hluti af þeirri vinnu sem er framundan, að þróa safnið og hagræða því.“

FÍ fasteignafélag, sem er að mestu í eigu íslenskra lífeyrissjóða, var sett í söluferli í byrjun árs 2023. Kaldalón náð samkomulagi í desember sl. um kaup á fasteignasafni FÍ fasteignafélags. Viðskiptin voru fullfjármögnuð með útgáfu hluta- og skuldabréfa til seljanda.

Landlæknishúsið við Amtmannsstíg 1 í Reykjavík er friðlýst timburhús reist árið 1838.
© Aðsend mynd

„Vaxtartímabili lokið“

Jón Þór segir að félagið hafi á fyrri hluta ársins náð því vaxtarmarkmiði sem félagið setti sér fyrir þremur árum. Með afhendingu fasteigna FÍ fasteignafélags sé eignasafn félagsins um 169.000 fermetrar og verðmæti fjárfestingareigna nemur tæpum 100 milljörðum króna.

„Með þessum áfanga er metnaðarfullu vaxtarmarkmiði sem sett var fyrir um þremur árum að ljúka. Áherslur félagsins færast nú í auknum mæli að rekstri eignasafnsins, útleigu og þróun þess. Næstu misseri fara meðal annars í móttöku fasteigna FÍ, úrvinnslu þeirra og útleigu, en hluti safnsins er óútleigður. Þar liggja jafnframt skýr tækifæri til tekjuvaxtar án nýrrar fjárfestingar.”

Glæra úr fjárfestakynningu Kaldalóns.

14% arðsemi

Kaldalón hagnaðist um 1,9 milljarða króna á fyrri árshelmingi, samanborið við 1,4 milljarða á sama tímabili í fyrra. Það samsvarar um 14% arðsemi eigin fjár.

Leigutekjur jukust um 19% milli ára og námu 3,1 milljarði króna. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu nam 2,4 milljörðum og jókst um 18% frá sama tímabili í fyrra þegar hann nam tæplega 2,1 milljarði.

Jón Þór segirt tekjuvöxtinn koma til vegna stærra eignasafns, nýrra og endurnýjaðra leigusamninga og verðlagsbreytinga. Handbært fé frá rekstri hafi aukist um 67% milli ára og nemi 1.163 milljónum króna.

Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns.
© Aðsend mynd

Heimild: Vb.is

Efni: Selja þrjár sögu­frægar fast­eignir í miðbænum