Home Fréttir Í fréttum Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt

Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt

82
0
Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt
Daníel Sigurðsson er skattakóngur ársins 2025. mbl.is/Karítas

Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt

Skattakóngur ársins 2025 er Daníel Sigurðsson, framkvæmdastjóri DS Lausna. Greiddi hann 942 milljónir króna í fjármagnstekjuskatt í fyrra að því er fram kemur í umfjöllun Viðskiptablaðsins.

Þá námu fjármagnstekjur hans tæpum 4,3 milljörðum króna samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra.

Um er að ræða skattskyldar fjármagnstekjur, þ.e. vaxta- og leigutekjur, arðgreiðslur, söluhagnað og eftir atvikum höfundaréttargreiðslur.

Daníel stofnaði DS Lausnir árið 2002 en fyrirtækið sérhæfir sig í sölu, útleigu og þjónustu byggingakrana. Hann átti 100% hlut í fyrirtækinu þar til að Fagkaup keypti 70% hlut af honum í fyrra.

Fyrirtækið velti 2,5 milljörðum króna í fyrra og nam hagnaður ársins 581 milljón króna, samanborið við 491 milljón árið 2024. Eignir voru bókfærðar á 3,5 milljarða í árslok og eigið fé nam 3 milljörðum.

IKEA-bræðurnir fylgja á eftir

Í heild voru tólf Íslendingar með yfir milljarð í fjármagnstekjur árið 2025. Sigurður Gísli Pálmason, fyrrverandi eigandi Ikea á Íslandi og í Eystrasaltsríkjunum, greiddi 696 milljónir króna í fjármagnstekjuskatt og námu fjármagnstekjur hans því um 3,2 milljörðum króna á síðasta ári.

Sigurður Gísli og Jón Pálmasynir seldu reksturinn í Eistlandi, Lettlandi og Litáen árið 2024. Sigurður Gísli seldi þá einnig hlut sinn í Ikea á Íslandi til Jóns bróður síns. Fjármagnstekjur Jóns Pálmasonar námu tæplega 1,3 milljörðum árið 2025.

Heimild: Mbl.is

Efni: Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt