Home Fréttir Í fréttum Steypuvinna hafin við nýja heilsulind á Siglufirði

Steypuvinna hafin við nýja heilsulind á Siglufirði

121
0
Steypuvinna hafin við nýja heilsulind á Siglufirði
Myndir: Smári/Trölli.is.

Steypuvinna hafin við nýja heilsulind á Siglufirði

Framkvæmdir við nýja heilsulind við Segul 67 á Siglufirði eru komnar á nýtt stig en steypuvinna við grunn byggingarinnar hófst í morgun. Byggingafélagið Berg ehf. annast framkvæmdir við verkefnið, sem á að sameina íslenskan jarðhita, svartan basaltsand og hráefni úr hafinu í nýjum áfangastað á Siglufirði.

Steypubílar mættu á framkvæmdasvæðið við Vetrarbraut 8–10 í morgun, fimmtudaginn 20. ágúst, og hófu starfsmenn Byggingafélagsins Bergs ehf. þá steypuvinnu við grunn nýju heilsulindarinnar.

Framkvæmdir hafa staðið yfir á svæðinu í sumar en með steypuvinnunni er uppbygging mannvirkisins nú komin á sýnilegra byggingarstig.

Heilsulind byggð upp í kringum eld og haf

Heilsulindin verður reist við brugghúsið Segul 67 og byggir hugmyndafræði hennar á tveimur sterkum einkennum íslenskrar náttúru – eldinum og hafinu.

Að verkefninu stendur meðal annars Marteinn Brynjólfur Haraldsson, eigandi Seguls 67, en markmiðið er að skapa nýjan áfangastað á Siglufirði þar sem baðmenning, náttúra og saga staðarins fléttast saman.

Í heilsulindinni verða meðal annars þurrgufur, gufuböð og heitir pottar utandyra. Þar verða jafnframt tvær óvenjulegri megineiningar, sandböð og svokölluð sjávarlind.

Heitur íslenskur basaltsandur

Sandböðin sækja fyrirmynd sína til japanskrar baðhefðar þar sem gestir hvíla í upphituðum sandi.

Á Siglufirði verður hugmyndin útfærð með svörtum íslenskum basaltsandi sem hitaður verður með jarðvarma. Þannig verður íslensk náttúra hluti af sjálfri upplifun heilsulindarinnar.

Á móti hinu dökka og heita sandbaði verður ljósari sjávarlind sem þróuð er í samstarfi við ChitoCare á Siglufirði. Þar verður meðal annars unnið með chitosan úr sjávarfangi og ferskan þara úr nágrenni Siglufjarðar.

Tölvuteikning frá Former arkitektum sýnir hvernig aðkomutorg heilsulindarinnar við Segul 67 mun líta út að framkvæmdum loknum.

Former arkitektar hanna heilsulindina

Hönnun verkefnisins er í höndum Former arkitekta, en stofan var stofnuð árið 2022 af arkitektunum Ellerti Hreinssyni og Rebekku Pétursdóttur.

Með nýju heilsulindinni er stefnt að frekari uppbyggingu ferðaþjónustu og afþreyingar á Siglufirði og að skapa áfangastað sem nýtir sérstöðu bæjarins og tengsl hans við náttúru og haf.

Heimild: Trolli.is

Efni: Steypuvinna hafin við nýja heilsulind á Siglufirði