
„Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði
Staðan á íbúðamarkaði er erfið. Háir vextir gera byggingaverktökum erfitt fyrir að fjármagna verkefni og þeir sitja uppi með óseldar íbúðir.
Samtök iðnaðarins (SI) hafa kallað eftir því að Seðlabankinn haldi meginvöxtum óbreyttum í næstu vaxtaákvörðun, 19. ágúst. Þrátt fyrir að verðbólga sé enn langt yfir markmiði bankans telja samtökin að frekari vaxtahækkanir geti verið of mikið aðhald við núverandi aðstæður.
Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI hefur jafnframt varað við erfiðri stöðu í byggingariðnaðinum. Samkvæmt upplýsingum samtakanna hafa alvarleg vanskil greinarinnar hjá stóru viðskiptabönkunum þremur nær þrefaldast á fyrri helmingi ársins.
Heimild: Mbl.is











