Home Fréttir Í fréttum Búið að rífa á þriðja tug ónýtra húsa í Grindavík

Búið að rífa á þriðja tug ónýtra húsa í Grindavík

57
0
Búið að rífa á þriðja tug ónýtra húsa í Grindavík
Mynd: Ruv.is

Búið að rífa á þriðja tug ónýtra húsa í Grindavík

Framkvæmdir í Grindavík eru langt á veg komnar og er búið að rífa á þriðja tug ónýtra húsa. Verktaki segir sprungufyllingar ganga vel og áætlar verklok fyrir jól.

Sprungufyllingar og niðurrif ónýtra húsa í Grindavík ganga vel, segir verktaki. Tuttugu og tvö hús af þrjátíu og fimm hafa verið rifin.

„Þetta er búið að ganga mjög vel. Við erum staddir í Stamphólsgjánni og erum að gera við hana og erum komnir hérna fram hjá íþróttahúsinu og Salthúsinu. Við erum komnir hérna talsvert upp fyrir, erum að nálgast fimmtíu blokkina sem er kölluð. Það er talsverð sprunga hérna sem við þurfum að fylla upp í og opna,“ segir Jón Gunnar Margeirsson, eigandi verktakafyrirtækisins Jón og Margeir.

Stamphólsgjá er ein af dýpstu og stærstu sprungunum sem liggja undir bænum og segir Jón Gunnar að framkvæmdir vegna hennar hafi verið ein helsta áskorunin hingað til.

Samkvæmt mælingum ÍSOR er gjáin allt að þrír metrar að breidd og rúmlega þrjátíu metra djúp.

Heimild: Ruv.is

Efni: Búið að rífa á þriðja tug ónýtra húsa í Grindavík