Home Fréttir Í fréttum Myndir: Nýtt World Class hótel

Myndir: Nýtt World Class hótel

156
0
Myndir: Nýtt World Class hótel
Markmiðið með World Class Wellness Hotel er að skapa heildstæðan áfangastað. Ljósmynd: Aðsend mynd

Myndir: Nýtt World Class hótel

Á fyrirhuguðu hóteli World Class verður áhersla á að skapa umhverfi sem sameinar heilsu, hreyfingu og slökun.

Nýtt vellíðunarhótel World Class sem rísa skal í Reykjanesbæ á næstu árum, er ætlað að skapa heildstæðan áfangastað fyrir erlenda sem innlenda gesti.

„Við viljum skapa heildrænan áfangastað þar sem gestir geta gist, stundað líkamsrækt, farið í heilsulind og notið baðlónsins sem hluta af sömu upplifun. Áherslan verður á gæði, þjónustu og umhverfi sem sameinar heilsu, hreyfingu og slökun,“ segir Birgitta Líf Björnsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar og markaðssviðs World Class.

Að baki hönnunar verkefnisins stendur alþjóðlegt teymi undir forystu arkitektastofunnar Populous í samstarfi við íslensku arkitektastofuna Úti og inni.

Við hönnunina hefur innblástur verið sóttur í íslenska náttúru, jarðhita og baðhefðir.

World Class Wellness Hotel verður stærsta framkvæmd fyrirtækisins frá stofnun.
© Aðsend mynd
Á svæðinu er ráðgert að reisa stærðarinnar baðlón.
© Aðsend mynd
Áformin gera ráð fyrir að heildarstærð baðlóns verði rúmlega 2 þúsund fermetrar.
© Aðsend mynd
Við hönnun var innblástur m.a. sóttur í íslenska náttúru og jarðhita.
© Aðsend mynd
Tenging við náttúruna var höfð til hliðsjónar við hönnunina.
© Aðsend mynd
Eins og nafnið gefur til kynna er mikil áhersla lögð á vellíðan.
© Aðsend mynd
Markmiðið er að skapa vellíðunaráfangastað þar sem slökun er í fyrirrúmi.
© Aðsend mynd
Á hótelinu er gert ráð fyrir 200 hótelherbergjum.
© Aðsend mynd
Á hótelsvæðinu er gert ráð fyrir veitingarekstri.
© Aðsend mynd
Gert er ráð fyrir fundar- og viðburðarými á hótelinu.
© Aðsend mynd

Heimild: Vb.is

Efni: Myndir: Nýtt World Class hótel