
Stórhuga verkefni World Class á Fitjum
World Class Wellness Hotel, staðsett á Fitjum í Reykjanesbæ, verður eitt umfangsmesta uppbyggingarverkefni í sögu fyrirtækisins.
World Class vinnur nú að undirbúningi umfangsmikils vellíðunarhótels á Fitjum í Reykjanesbæ þar sem áformað er að sameina hótel, baðlón, heilsulind, líkamsrækt, veitingastaði og fundaraðstöðu í einn áfangastað.
Á World Class Wellness Hotel er gert ráð fyrir um 200 hótelherbergjum, líkamsræktarstöð, heilsulind, veitingarekstri, fundar- og viðburðarými og stóru baðlóni.
Heildarstærð mannvirkjanna verður um 19 þúsund fermetrar auk kjallara, þar af rúmlega 12 þúsund fermetrar undir hótel, og um þrjú þúsund fermetrar undir líkamsrækt.
World Class Wellness Hotel verður ein stærsta framkvæmd sem fyrirtækið hefur ráðist í frá stofnun þess.
„Metnaðurinn hefur alltaf verið að byggja upp verkefni sem stenst alþjóðlegan samanburð. Þetta er án efa eitt stærsta og metnaðarfyllsta verkefni sem World Class hefur ráðist í,“ segir Birgitta Líf Björnsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar og markaðssviðs World Class.
Í Viðskiptablaðinu sem kom út í gærmorgun er fjöldi mynda, sem sýna útlitið á fyrirhugðu hóteli World Class.
Heimild: Vb.is
Efni: Stórhuga verkefni World Class á Fitjum











