Jarðvinna við nýtt menningarhús á Sauðárkróki komin á fullt
Framkvæmdir við nýtt menningarhús á Sauðárkróki eru komnar á fullt, en Þ. Hansen ehf. vinnur nú að jarðvinnu vegna byggingarinnar. Um er að ræða fyrsta verklega áfangann í uppbyggingu menningarhússins.
Þ. Hansen ehf. greinir frá því á Facebook síðu sinni að jarðvinna við nýja menningarhúsið sé í fullum gangi og gangi vel.

Þ. Hansen bauð 49,6 milljónir í jarðvinnuna
BYGGINGAR.IS greindi frá því í júní að Þ. Hansen hefði átt lægsta tilboðið í verkið „Menningarhús í Skagafirði – Jarðvinna 2026“.
Þrjú tilboð bárust þegar þau voru opnuð 22. maí. Tilboð Þ. Hansen nam 49.619.193 krónum, sem samkvæmt fundargögnum Skagafjarðar var 35,1% af kostnaðaráætlun Verkís fyrir jarðvinnuna.
Byggðarráð Skagafjarðar fagnaði niðurstöðu útboðsins og sagði jarðvinnuna marka fyrsta áfanga verklegra framkvæmda við uppbyggingu nýs menningarhúss á Sauðárkróki. Afgreiðslan var síðar staðfest samhljóða í sveitarstjórn.

Framkvæmdir nú sýnilegar á svæðinu
Með jarðvinnunni er uppbygging menningarhússins því komin af undirbúnings- og útboðsstigi yfir í eiginlegar framkvæmdir.
Nýjustu myndir Þ. Hansen frá Facebook síðu sinni sýna vinnuvélar að störfum á framkvæmdasvæðinu og að jarðvegsvinna sé komin vel af stað.

Fyrri frétt BYGGINGAR.IS:
Þ. Hansen ehf. fær jarðvinnuverkefni við nýtt menningarhús í Skagafirði
Heimild: Þ. Hansen ehf.












