Kólnun á húsnæðismarkaði Kaupmannahafnar
Fjöldi íbúða til sölu í Kaupmannahöfn hefur aukist um 70% frá upphafi árs og telja sérfræðingar að íbúðaverð geti tekið að lækka á næstunni.
Framboð íbúða í Kaupmannahöfn hefur aukist verulega eftir mörg ár af miklum verðhækkunum og takmörkuðu úrvali. Í júlí fjölgaði íbúðum á sölu um 7,4% og frá áramótum hefur framboðið aukist um tæp 70%, samkvæmt nýjum tölum Boligsiden.
Á síðasta ári hækkaði verð á íbúðum í borginni um 23%. Danski seðlabankinn hefur varað við þróuninni en aukið framboð gæti nú dregið úr verðþrýstingi.
Fyrir ári voru 1.160 íbúðir til sölu í Kaupmannahöfn. Í júlí voru þær orðnar 1.750 og um 120 fleiri en mánuðinn áður.
„Fyrir ári þráðu fasteignasalar fleiri íbúðir á markað. Nú streyma þær inn. Þetta eru gríðarleg umskipti,“ segir Mira Lie Nielsen, húsnæðishagfræðingur hjá Børsen.
Heimild: Vb.is












