Home Fréttir Í fréttum Fella niður ákæru gegn fyrrverandi ólympíumanni vegna gallaðra framkvæmda

Fella niður ákæru gegn fyrrverandi ólympíumanni vegna gallaðra framkvæmda

96
0
Fella niður ákæru gegn fyrrverandi ólympíumanni vegna gallaðra framkvæmda
Unnið að endurbótum á Spegilstjörninni í Washington DC. EPA – JIM LO SCALZO

Fella niður ákæru gegn fyrrverandi ólympíumanni vegna gallaðra framkvæmda

Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur fellt niður ákæru gegn fyrrverandi ólympíumanninum David Hearn sem var sakaður um að skemma Spegiltjörnina við Lincoln-minnisvarðann. Ný gögn sýna að skemmdirnar séu afleiðing af gölluðum frágangi verktaka.

Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna viðurkennir að 14 milljóna dollara endurbætur á Spegilstjörninni (e. Reflecting pool) við Lincoln-minnisvarðann í Washington DC, sem hófust að frumkvæði Donalds Trump Bandaríkjaforseta, hafi verið gallaðar. Þá fallast yfirvöld á að fella niður sakamálið gegn fyrrum ólympíumanninum David Hearn, en hann var sakaður um að hafa skemmt tjörnina, samkvæmt nýjum dómsskjölum frá Jeanine Pirro, ríkissaksóknara í DC.

CNN greinir frá.

Spegilstjörnin í Washington DC.
AP / Manuel Balce Ceneta

„Það var ekki fyrr en eftir að ákæra [gegn Hearn] var gefin út að innanríkisráðuneytið afhenti ríkissaksóknaraembættinu í DC frekari skjöl sem bentu til þess að skemmdir á spegiltjörninni við Lincoln-minnisvarðann í júní 2026 hafi verið afleiðing af gölluðum frágangi verktakans, Atlantic Industrial Coatings, og flýtis við að ljúka verkinu fyrir viðburði tengda 250 ára afmæli Bandaríkjanna á vikunum í kringum þjóðhátíðardaginn 2026,“ skrifaði skrifstofa Pirro.

David Hearn keppti fyrir hönd Bandaríkjanna í kajakróðrum í Sydney árið 2000
AP / KOJI SASAHARA

Lögmenn Hearn sögðu í yfirlýsingu vegna ákvörðunarinnar að málsskýring Trump-stjórnarinnar hefði aldrei átt að fara af stað.

„Niðurfelling málsins í dag afmáir ekki misnotkun ríkisvaldsins með því að handtaka og ákæra þjóðrækinn Bandaríkjamann sem gerði ekkert af sér. Aðferð stjórnvalda var að „skjóta fyrst, spyrja svo“.Stjórnvöld skulda Hearn afsökunarbeiðni.“

Heimild: Ruv.is

Efni: Fella niður ákæru gegn fyrrverandi ólympíumanni vegna gallaðra framkvæmda