Home Fréttir Í fréttum Tilboðin sem bárust voru of há

Tilboðin sem bárust voru of há

129
0
Tilboðin sem bárust voru of há
Baldur siglir á milli Stykkishólms og Brjánslækjar. Þar stóð til að malbika í sumar en ákveðið hefur verið að fresta verkinu um ár. mbl.is/Sigurður Bogi

Tilboðin sem bárust voru of há

Ekki verður malbikað frá þjóðveginum niður að bryggjunni á Brjánslæk í sumar eins og til stóð. Þetta staðfestir G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar hjá Vegagerðinni. Ferjan Baldur siglir frá Brjánslæk á sunnanverðum Vestfjörðum til Stykkishólms með viðkomu í Flatey.

Ástæða frestunarinnar er sú að tilboðin sem bárust í verkið þóttu of há, að sögn G. Péturs. Til stendur að bjóða verkið út aftur og malbika á næsta ári.

„Þetta var sameiginlegt tilboð með sveitarfélögunum en við setjum þetta upp aðeins öðruvísi næst,“ segir hann.

Ferjan Baldur sneri aftur til sinnar venjulegu siglingarleiðar á miðvikudaginn. Í sumar sigldi hún um skeið á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja vegna takmarkaðra afkasta ferjunnar Herjólfs. Ferjan Særún sá á meðan um siglingar frá Stykkishólmi til Flateyjar. Siglingar milli Brjánslækjar og Flateyjar lágu hins vegar niðri á meðan.

Heimild: Mbl.is