Home Fréttir Í fréttum Þrettán Aalto-byggingar í Finnlandi á heimsminjaskrá UNESCO

Þrettán Aalto-byggingar í Finnlandi á heimsminjaskrá UNESCO

27
0
Þrettán Aalto-byggingar í Finnlandi á heimsminjaskrá UNESCO
Norræna húsið í Vatnsmýrinni er eina byggingin á Íslandi sem Alvar Aalto hannaði. Það var opnað árið 1968. RÚV – Ragnar Visage

Þrettán Aalto-byggingar í Finnlandi á heimsminjaskrá UNESCO

Þrettán byggingar eftir finnska arkitektinn Alvar Aalto og eiginkonur hans Aino og Elissu verða að líkindum settar á heimsminjaskrá UNESCO, Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, síðar í þessum mánuði.

Byggingarnar sem Finnska menningarsögufélagið hefur tilnefnt eru allar í Finnlandi, þar sem Aalto starfaði með eiginkonum sínum, sem einnig voru arkitektar – Aino sem lést 1949 og síðan Elissu.

Ein af þeim þekktustu er Finlandia-tónleika- og ráðstefnuhöllin sem tekin var í notkun seint á sjöunda áratug síðustu aldar. Meðal annarra bygginga er Paimio-heilsuhælið í samnefndum bæ í Finnlandi; bygging sem fyrir löngu er orðin fræg sem eitt af bestu dæmunum um byggingarlist Aaltos.

Finnska menningarsögufélagið segir í umsókn sinni að byggingarnar þrettán séu ekki endilega þær bestu sem Aalto hannaði, heldur standi þær fyrir þau áhrif sem arkitektarnir höfðu á þróun finnsks samfélags á síðustu öld.

Aalto hannaði hús víða um heim og eitt hér á landi; það erNorræna húsið í Vatnsmýrinni í Reykjavík, sem opnað var 1968. Á heimasíðu Norræna hússins segir meðal annars um Aalto:

„Útgangspunktur allrar vinnu hans var að setja eðli og þarfir mannsins í fyrirrúm, og hann var sannfærður um gildi góðrar byggingarlistar til að auðga mannlegt líf og tilveru.“

Heimild: Ruv.is