Ný innkeyrsla á að auðvelda aðkomu að Keflavíkurflugvelli
Miklar framkvæmdir hafa verið við Keflavíkurflugvöll síðustu mánuði sem ætlað er að bæta aðkomu og bílastæði. Byggt hefur verið yfir helstu gönguleiðir til að verja farþega fyrir veðri og vindum.
Isavia hefur opnað nýja innkeyrslu við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli sem ætlað er að bæta aðkomu. Miklum framkvæmdum sem hafa staðið yfir á bílastæðum, þar sem komufarþegar yfirgefa flugstöðina, síðustu mánuði fer senn að ljúka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.
Búið er að byggja yfir helstu gönguleiðir á svæðinu í þeim tilgangi að verja farþega fyrir veðri og vindum á leið sinni að eða frá þeim samgönguleiðum sem þeir hafa valið.
Á næstu vikum verður framkvæmdum á komubílastæðunum að mestu lokið og nýjar og skýrar merkingar komnar upp.
Á meðfylgjandi mynd sést hvernig aðkomunni er háttað eftir breytingarnar

Heimild: Ruv.is












