Home Fréttir Í fréttum Al­vot­ech hætt við upp­byggingu á Granda

Al­vot­ech hætt við upp­byggingu á Granda

215
0
Al­vot­ech hætt við upp­byggingu á Granda
Svona sáu arkitektar fyrir sér að nýbyggingin í Örfirisey geti litið út samkvæmt tölvumynd Nordic Office of Architecture

Al­vot­ech hætt við upp­byggingu á Granda

Al­vot­ech hyggst ekki ráðast í áður fyrir­hugaða upp­byggingu við Fiskislóð og hefur þess í stað sótt um nýja lóð í Vatns­mýri.

Al­vot­ech hefur fallið frá áformum um að reisa um­fangs­mikið húsnæði undir starf­semi félagsins við Fiskislóð á Granda.

Félagið hefur þess í stað sótt um nýja lóð í Vatns­mýri, nærri núverandi höfuðstöðvum og fram­leiðslu­stöð Al­vot­ech, sam­kvæmt svörum félagsins við fyrir­spurn Við­skipta­blaðsins.

„Al­vot­ech hefur sótt um nýja lóð í Vatns­mýri og telur félagið að upp­bygging við hlið núverandi höfuðstöðva muni henta fyrir­huguðum vexti starf­seminnar best,“ segir Al­vot­ech.

„Félagið hefur ekki áform um að byggja á lóðinni á Granda, sem er ekki í eigu Al­vot­ech,“ segir þar enn fremur.

Átti að hýsa pökkun og vöru­geymslur

Morgun­blaðið greindi frá því í septem­ber síðastliðnum að til stæði að reisa stór­hýsi fyrir Al­vot­ech á lóðunum við Fiskislóð 33, 35 og 37 í Örfiris­ey.

Fyrir­hugað var að sam­eina lóðirnar þrjár og reisa þar meðal annars pökkunar- og sam­setningar­verk­smiðju, vöru­hús og skrif­stofur fyrir félagið.

Í þar­falýsingu sem fylgdi skipu­lags­vinnunni kom fram að mark­miðið væri að byggja hátækniaðstöðu sem gæti annað allt að 100% af sam­setningarþörf Al­vot­ech. Þar var meðal annars átt við sam­setningu sprauta í lyfja­penna eða annan öryggis­búnað.

Í þar­falýsingu sem fylgdi skipu­lags­vinnunni kom fram að mark­miðið væri að byggja hátækniaðstöðu sem gæti annað allt að 100% af sam­setningarþörf Al­vot­ech. Þar var meðal annars átt við sam­setningu sprauta í lyfja­penna eða annan öryggis­búnað.

Einnig var gert ráð fyrir að byggingin hýsti hluta af pökkunar­starf­semi félagsins, vöru­geymslur fyrir full­unnar vörur og hráefni, auk skrif­stofu­aðstöðu.

Áformin kölluðu á breytingu á deili­skipu­lagi svæðisins. Óskað var eftir því að lóðirnar yrðu sam­einaðar, nýtingar­hlut­fall hækkað og heimilt yrði að reisa allt að 18 metra háa byggingu. Hæðin var meðal annars rökstudd með þörf fyrir sjálf­virk vöru­húsa­kerfi sem upp­fylltu kröfur um birgðastýringu, gæða­eftir­lit og lyfja­fram­leiðslu.

Skipu­lags­full­trúi Reykja­víkur tók á sínum tíma jákvætt í að unnið yrði áfram að breytingunni. Til­lagan var síðar aug­lýst og var enn til með­ferðar hjá borginni fyrr í þessum mánuði.

Vill byggja við núverandi starf­semi

Nú liggur fyrir að Al­vot­ech ætlar ekki að nýta lóðina undir starf­semi sína, þótt skipu­lags­vinnan hafi verið komin nokkuð langt.

Félagið telur upp­byggingu í Vatns­mýri betur til þess fallna að styðja við fyrir­hugaðan vöxt. Núverandi höfuðstöðvar og megin­starf­semi Al­vot­ech á Ís­landi eru við Sæ­mundargötu, þar sem félagið rekur meðal annars þróunar- og fram­leiðslu­aðstöðu fyrir líftækni­lyf.

Ekki kemur fram í svari Al­vot­ech hversu stórri lóð félagið hefur óskað eftir í Vatns­mýri, hvenær upp­bygging gæti hafist eða hversu um­fangs­mikil hún yrði.

Heimild: Vb.is