Telur ekki tímabært að gera mislæg gatnamót
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur telur að leyfa þurfi framkvæmdum að klárast við gatnamót Breiðholtsbrautar og Arnarnesvegar áður en dæma megi um það hvort ráðast þurfi í endurskipulagningu svæðisins og þá mögulega gerð nýrra mislægra gatnamóta.
Undanfarna daga hefur Morgunblaðið fjallað um umferðartafir við ný ljósastýrð gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar sem voru opnuð fyrr í þessum mánuði.
Þar hafði Vegagerðin upprunalega áformað að reisa fullbúin mislæg gatnamót en var að lokum vikið frá því og ljósastýrð gatnamót gerð í staðinn að kröfu Reykjavíkurborgar.
Heimild: Mbl.is












