Home Fréttir Í fréttum Steypubíllinn dreginn á þurrt land

Steypubíllinn dreginn á þurrt land

206
0
Steypubíllinn dreginn á þurrt land
Það tók um eina og hálfa klukkustund að ná bílnum upp úr Þjórsánni. RÚV – Magnús Hlynur Hreiðarsson

Steypubíllinn dreginn á þurrt land

Steypubíll sem fór út af brú yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun í gærkvöld var dreginn upp á þurrt land nú síðdegis.

RÚV / Magnús Hlynur Hreiðarsson

Steypubíll sem fór út af brú yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun í gærkvöld var dreginn upp úr ánni í dag.

Töluvert hafði lækkað í ánni en lokað hafði verið fyrir vatnsrennsli í ána sem er hjáveita fyrir Landsvirkjun.

RÚV / Magnús Hlynur Hreiðarsson

Það tók um eina og hálfa klukkustund að ná bílnum upp úr Þjórsánni en hann var dreginn upp með krana.

Handrið brúarinnar er enn laskað og er því brúin lokuð þar til viðgerð er yfirstaðin.

RÚV / Magnús Hlynur Hreiðarsson

Heimild: Ruv.is