Home Fréttir Í fréttum Náði að koma sér upp á þak steypubílsins

Náði að koma sér upp á þak steypubílsins

218
0
Náði að koma sér upp á þak steypubílsins
Frá aðgerðum á vettvangi eftir að bíllinn hafnaði í ánni. Ljósmynd/Aðsend

Náði að koma sér upp á þak steypubílsins

Fjölmennt viðbragðslið var kallað út rétt fyrir klukkan 20 í kvöld eftir að steypubíll fór út af brú yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun og hafnaði í ánni.

Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir voru kallaðar á vettvang ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi var einn í bílnum og náði hann af sjálfsdáðum að koma sér út og upp á þak bílsins þar sem hann beið bjargar.

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti manninn á bráðamóttöku Landspítalans.

Heimild: Mbl.is