Home Fréttir Í fréttum Gæti þurft annars stigs hreinsun á skólpi

Gæti þurft annars stigs hreinsun á skólpi

60
0
Gæti þurft annars stigs hreinsun á skólpi
Norðurorka gæti þurft að fara í annars stigs hreinsun á fráveituvatni. RÚV – Kristófer Óli Birkisson

Gæti þurft annars stigs hreinsun á skólpi

Tilraunir Akureyrarbæjar til þess að fá innri Eyjafjörð metinn sem síður viðkvæmt svæði gekk ekki eftir. Rannsóknir á sjávarbotni sýna að hann er mjög viðkvæmur.

Umhverfis- og orkustofnun áformar að synja Akureyrarbæ og Norðurorku um að skilgreina innri Eyjafjörð sem síður viðkvæmt svæði þegar kemur að fráveitu og skólphreinsun. Þetta liggur fyrir eftir niðurstöður umhverfisvöktunar á svæðinu. Þær benda til þess að botndýralíf þar sé undir álagi. Niðurstöður vöktunarinnar komu Norðurorku ekki á óvart.

„Auðvitað reiknuðum við með lífrænu álagi en kannski ekki eins miklu og kom fram í þessari rannsókn,“ segir Stella Árnadóttir, umhverfis og öryggisstjóri Norðurorku.

Gæti þurft annars stigs hreinsun

Ef Eyjafjörðurinn fær ekki þessa skilgreiningu þarf að ráðast í annars stigs hreinsun.

„Þá eru í rauninni þessu lífrænu efni þau eru hreinsuð betur frá. Fyrsta stigið er í rauninni að þá er ákveðin lágmarks hreinsun á fráveituvatninu og sigtun. Önnur stigs hreinsun, þá ertu kominn í meiri hreinsun. Nærð meira af lífrænum efnum út úr fráveitunni,“ segir Stella.

Skólphreinsistöðin á Akureyri var upphaflega tekin í notkun 2020 og byggð með það í huga að þar gæti farið fram annars stigs hreinsun. Það er þó ekki hafið en slíkar breytingar eru kostnaðarsamar. Örlítil aukning hefur verið milli ára á rusli sem er sigtað frá fráveituvatni.

„En þetta er svona, það er að jafnaði um 45-47 tonn sem við erum að safna af rusli, það er svona frekar aukning heldur en minnkun.“

Heimild: Ruv.is

Efni: Gæti þurft annars stigs hreinsun á skólpi