Hönnun 108 rýma hjúkrunarheimilis í Vatnshlíð boðin út
JTV ehf., fyrir hönd Vigdísarholts ehf., hefur auglýst almennt útboð vegna hönnunar nýs 108 rýma hjúkrunarheimilis í Vatnshlíð í Hafnarfirði.
Hjúkrunarheimilið verður hluti af nýjum lífsgæðakjarna þar sem samþætt verða búseta og fjölbreytt þjónusta fyrir eldra fólk. Áætlað er að byggingin verði um 7.000 fermetrar að stærð.
Verkefnið felur í sér fullnaðarhönnun mannvirkisins, þar sem hönnuðir skulu skila öllum hönnunargögnum tilbúnum fyrir útboð framkvæmda.
Leitað að öflugum hönnunarteymum
Óskað er eftir tilboðum frá þverfaglegum hönnunarteymum sem samanstanda meðal annars af:
- Hönnunarstjóra.
- Arkitektum.
- Verkfræðihönnuðum.
- BIM-ráðgjöfum.
- Brunahönnuðum.
- Hljóðvistarhönnuðum.
- Sérfræðingum í LCA-greiningum (lífsferilsgreiningu).
Almennt útboð
Útboðið er auglýst samkvæmt lögum um opinber innkaup nr. 120/2016 og er um almennt innlent útboð að ræða þar sem öllum hæfum hönnunarteymum er gefinn kostur á að leggja fram tilboð.
Helstu dagsetningar
- Útboðsgögn afhent frá: 3. júlí 2026.
- Fyrirspurnarfrestur: 25. júlí 2026.
- Skilafrestur tilboða: 5. ágúst 2026 kl. 13:00.
Aðgangur að útboðsgögnum
Gögn verða afhent á rafrænu formi frá og með föstudeginum 3.júlí 2026. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Fjalar Hauksson hjá JTV ehf með því að senda tölvupóst á netfangið fjalar@jtv.is og gefa upp nafn, nafn fyrirtækis, síma og netfang og fá í kjölfarið aðgang að útboðsgögnum á verkefnavef verkefnisins.
Fyrirspurnir merktar tilboðinu skulu sendar umsjónarmanni útboðs í gegnum verkefnavef verkefnisins eða í tölvupósti á netfangið fjalar@jtv.is . Fyrirspurnir skulu berast í síðasta lagi 25. júlí 2026. Fyrirspurnir og samhljóða svör verða birt á verkefnavef innan þess frests sem tilgreindur er í útboðs- og samningsskilmálum og teljast þau hluti útboðsgagna.
Heimild: Vigdísarholt












