Home Fréttir Í fréttum HMS leggur til einfaldari og nútímalegri byggingarreglugerð

HMS leggur til einfaldari og nútímalegri byggingarreglugerð

58
0
HMS leggur til einfaldari og nútímalegri byggingarreglugerð
Mynd: HMS,is

HMS leggur til einfaldari og nútímalegri byggingarreglugerð

  • Tillögur HMS að nýrri byggingarreglugerð voru kynntar á opnum fundi með ráðherra í dag
  • Styttri málsmeðferðartími byggingarleyfa og aukin neytendavernd með bættu eftirliti eru á meðal ætlaðra áhrifa nýrrar reglugerðar
  • Óþarfa stjórnsýslukröfur yrðu felldar niður og fagaðilum yrði veitt aukið svigrúm í stað þess að láta þá fylgja forskrifuðum ríkislausnum

Ný byggingarreglugerð gæti aukið samkeppnishæfni mannvirkjaiðnaðarins, styrkt neytendavernd og lækkað byggingarkostnað með því að fella niður óþarfa stjórnsýslukröfur og innleiða áhættumiðað byggingareftirlit. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tillögum HMS um einföldun og nútímavæðingu byggingareglugerðar, sem kynntar voru á opnum fundi fyrr í dag.

HMS hefur nú þegar unnið tillögur að breyttu byggingareftirliti í nýrri byggingarreglugerð, en lesa má þær í heild sinni með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Breytt byggingareftirlit – Tillögur HMS skoða hér 

Breytingarnar eru liður í heildstæðu átaki stjórnvalda til að einfalda regluverk á sviði mannvirkjagerðar, stuðla að skilvirkari stjórnsýslu og skapa betri skilyrði fyrir uppbyggingu húsnæðis og annarra mannvirkja. Jafnframt er lögð áhersla á að viðhalda öryggi og gæðum mannvirkja með markvissari og áhættumiðaðri nálgun í byggingareftirliti.

Markmið breytinganna eru að:

  1. auka samkeppnishæfni mannvirkjaiðnaðarins með því að fella niður óþarfa stjórnsýslukröfur og innleiða áhættumiðað byggingareftirlit
  2. styrkja neytendavernd og fækka byggingargöllum í íslenskum mannvirkjum
  3. lækka byggingarkostnað og stuðla að aukinni nýsköpun í mannvirkjagerð

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, sagðist telja verkefnið vera eitt það mikilvægasta sem ráðist hefði verið í á sviði mannvirkjamála á Íslandi um langt árabil. Um kerfisbreytingu væri að ræða. Ekki væri verið að minnka kröfurnar eða draga úr gæðum mannvirkja heldur gera reglurnar einfaldari, skýrari og markvissari.

„Við viljum einfalda ferla þar sem það er hægt, en án þess að það komi niður á gæðum. Við viljum fella niður óþarfa stjórnsýslukröfur þar sem þær þjóna ekki skýrum tilgangi. Við viljum skýra ábyrgð þar sem hún hefur verið óljós,” sagði hann og undirstrikaði að fólk yrði að geta treyst því að húsnæðið sem það keypti, leigði eða byggi í stæðist þær kröfur sem gerðar væru til öryggis og gæða.

Mik­ill ávinn­ing­ur með skýr­ara reglu­verki og auknu svig­rúmi

Byggingarreglugerð er eitt af lykiltækjum stjórnvalda til að tryggja öryggi, grunnkröfur um mannvirki og samfélagslega ábyrgð í mannvirkjagerð. Núverandi reglugerð er hins vegar löng og ítarleg, en hún telur alls 400 greinar og 142 blaðsíður. Sömuleiðis er reglugerðin ekki einföld yfirferðar þar sem henni hefur verið breytt 17 sinnum eftir að hafa verið gefin út árið 2012.

Á undanförnum árum hefur verið kallað eftir breytingum á reglugerðinni af hagaðilum með einföldun í huga. Þeirra á meðal var OECD, sem benti á mörg atriði til úrbóta í reglugerðinni í samkeppnismati sínu á íslenskum byggingariðnaði árið 2020.

Hermann Jónasson, forstjóri HMS. Mynd: HMS,is

Tillögur HMS fela í sér að kröfur í byggingarreglugerðinni byggi á skýrum markmiðum, ábyrgð og faglegri þekkingu og taki mið af fyrirhugaðri notkun mannvirkja. Fagaðilum verði því veitt aukið svigrúm við útfærslu lausna, þar sem ekki þurfi að byggja mannvirki eftir ítarlegum forskriftum. Samhliða því fela tillögurnar í sér einfaldari framsetningu og minna umfang, auk þess sem dregið er úr endurtekningum og hættu á ósamræmi á milli ákvæða reglugerðarinnar. Sem dæmi má nefna að gert er ráð fyrir að kafli um hljóðvist í nýrri reglugerð verði 70% styttri en í gildandi reglugerð.

Hluti af kerf­is­breyt­ingu í mann­virkja­gerð

Á fundinum voru tillögur HMS að einföldun og nútímavæðingu byggingarreglugerðar settar í samhengi við þau verkefni sem HMS vinnur nú að og miða að því að draga úr byggingarkostnaði og auka neytendavernd. Þeirra á meðal er eitt umsóknarkerfi fyrir byggingarleyfi á Íslandi og tillögur að áhættumiðuðu byggingareftirliti með óháðum skoðunarstofum. Sjá má upptöku af fundinum hér að neðan.

Alls hafa 20 sveitarfélög tekið upp sameiginlegt umsóknarkerfi fyrir byggingarleyfi á Íslandi, en þeirra á meðal er Reykjavíkurborg. Markmið kerfisins er að stuðla að styttri afgreiðslufresti, einfaldari samskiptum og aukinni sjálfvirkni. Stefnt er að því að öll sveitarfélög á landinu verði orðin tengd við samræmda umsóknarkerfið fyrir lok árs.

Áhættumiðað eftirlit fæli í sér að umfang eftirlits yrði ákvarðað út frá helstu áhættuþáttum viðkomandi framkvæmdar, auk frammistöðu löggiltra hönnuða, iðnmeistara og fleiri. Með slíku eftirliti sem framkvæmt yrði af óháðum skoðunarstofum yrði byggingaraðilum með farsæla reynslu af framkvæmdum umbunað með minni kostnaði af eftirliti.

Opið sam­ráð á næstu mán­uð­um

Á næstu mánuðum munu einstakir hlutar byggingarreglugerðar fara í opið samráð hjá HMS. Drög að hverjum kafla í nýrri reglugerð verða birt á vef ásamt greinargerð um breytingarnar, auk þess sem HMS mun halda opna fundi þar sem drögin eru kynnt og boðið verður upp á samtal. Hagaðilum verður í kjölfarið gefinn kostur á að skila inn athugasemdum.

Heimild: HMS.is

Efni: HMS leggur til einfaldari og nútímalegri byggingarreglugerð