„Saman byggjum hærra betur“ – ráðstefna um framtíð borgarþróunar og þéttingar
Nordic Office of Architecture á Íslandi stendur, í samstarfi við Council on Vertical Urbanism, fyrir opnum viðburði fimmtudaginn 25. júní klukkan 17:00 til 19:00 þar sem framtíð borgarþróunar, þéttingar byggðar og seiglu borga verður til umræðu.
Viðburðurinn ber yfirskriftina „Saman byggjum hærra betur“ og mun leiða saman sérfræðinga á sviði arkitektúrs, skipulagsmála, uppbyggingar, stjórnsýslu og fræðasamfélagsins.
Umræða um framtíð höfuðborgarsvæðisins
Á fundinum verður fjallað um hvernig Norðurlöndin og höfuðborgarsvæðið geti brugðist við þeim áskorunum sem fylgja:
- Fólksfjölgun og húsnæðisþörf
- Þéttingu byggðar
- Sjálfbærri borgarþróun
- Loftslagsbreytingum og seiglu borga
- Hæðaruppbyggingu og nýtingu lands
- Skipulags- og samgöngumálum
Markmið viðburðarins er að skapa vettvang fyrir samtal milli sérfræðinga, stjórnvalda og þeirra sem koma að uppbyggingu og skipulagi borga.
Sérfræðingar úr ólíkum greinum
Á viðburðinum munu sérfræðingar á sviði:
- Arkitektúrs
- Skipulagsmála
- Borgarþróunar
- Uppbyggingar og fasteignaþróunar
- Fræðasamfélagsins
- Opinberrar stjórnsýslu
ræða hvernig megi byggja sjálfbærari, þéttari og seigari borgarsamfélög til framtíðar.
Mikilvæg umræða fyrir byggingargeirann
Málefni eins og hæðaruppbygging, þétting byggðar og framtíðarskipulag þéttbýlis hafa verið mikið til umræðu á undanförnum árum. Viðburðurinn er því líklegur til að vekja áhuga meðal arkitekta, verkfræðinga, verktaka, skipulagsyfirvalda og annarra sem starfa við uppbyggingu mannvirkja.
Staðsetning viðburðar er í Hallarmúli 4, 108 Reykjavík
Dagskrá
Setning
Halldóra Vífilsdóttir, framkvæmdastjóri Nordic Office of Architecture á Íslandi.
Kynning á Council on Vertical Urbanism og samstarfstækifærum í Evrópu
Prófessor Dario Trabucco, framkvæmdastjóri CVU í Evrópu.
Kynning á norrænum kafla Council on Vertical Urbanism
Jonathan Alexander, yfirráðgjafi hjá Nordic Office of Architecture í Noregi.
Hæðarhús og þétting byggðar í íslensku samhengi
Jóhanna Helgadóttir, meðeigandi og sviðsstjóri skipulags hjá Nordic Office of Architecture á Íslandi.
Fræðilegt sjónarhorn
Karl Kvaran arkitekt, arkitektadeild Háskóla Íslands.
Sjónarhorn fasteignaþróunar
Björt Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Iðu.
Pallborðsumræður um framtíð borgarþróunar í Reykjavík
Fundarstjóri verður:
Kristinn Pálsson, skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar.
Að loknum pallborðsumræðum verður boðið upp á léttar veitingar og óformlegar umræður um þróun borgarumhverfis á Íslandi.
https://nordicarch.com/…/vertical-urbanism-in-an…
https://nordicarch.wufoo.com/…/vertical-urbanism-in-an…/












