Home Fréttir Í fréttum 06.07.2026 Hornafjörður óskar eftir tilboðum í gatnagerð við Sandbakka

06.07.2026 Hornafjörður óskar eftir tilboðum í gatnagerð við Sandbakka

21
0
Hornafjörður óskar eftir tilboðum í gatnagerð við Sandbakka
Mynd: Hornafjörður

Hornafjörður óskar eftir tilboðum í gatnagerð við Sandbakka

Sveitarfélagið Hornafjörður hefur auglýst verðfyrirspurn vegna gatnagerðar við Sandbakka á Höfn. Verkið felur í sér endurgerð götunnar ásamt undirbúningi gangstétta og yfirborðsfrágangs.

Um er að ræða endurgerð um 148 metra langs götukafla með gangstéttum beggja vegna götunnar. Framkvæmdin er liður í endurbótum innviða á svæðinu og verður unnin samhliða endurnýjun fráveitulagna.

Endurnýjun gatna og lagna

Samkvæmt útboðsgögnum verður fráveituframkvæmdum í götunni lokið um miðjan ágúst. Verktaki gatnagerðarinnar þarf því að samræma framkvæmdir sínar við þann verktaka sem sér um endurnýjun fráveitulagna.

Gert er ráð fyrir að gatan verði malbikuð haustið 2026 og verður sú framkvæmd einnig unnin í samráði við umsjónarmann verkkaupa.

Helstu magntölur

  • Gröftur úr götustæði: 165 m³
  • Styrktarlag: 73 m³
  • Lengd götu: 148 m
  • Gangstéttir beggja vegna götunnar

Verklok í september

Áætlað er að framkvæmdum ljúki 15. september 2026.

Gögn

Gögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á  utbod@hornafjordur.is og eða til vara á trausti@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „SANDBAKKI – GATNAGERГ. Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „SANDBAKKI – GATNAGERГ.

Frekari fyrirspurnir skal senda á eftirfarandi netfang: trausti@hornafjordur.is þá merkja í “subject” reitinn: „SANDBAKKI – GATNAGERÐ – FYRIRSPURN“. Fyrirspurn skal berast í síðasta lagi 3 virkum dögum fyrir opnunardag tilboðs.

Rafrænt skil og opnun tilboða

Tilboðsgjafar skulu vera búnir að senda inn tilboði á sérstöku formi eigi síðar en mánudaginn 6.júlí 2026 kl. 11:00, en þá mun opnun tilboða fara fram í fundarsal í ráðhúsi Sveitarfélags Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn. Tilboð ásamt fylgigögnum skal senda með tölvupósti á netfangið utbod@hornafjordur.is og eða til vara á trausti@hornafjordur.is og skulu þau hafa borist áður en skilafrestur er runninn út.

Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum tilboðum.

Heimild: Hornafjordur.is

Efni: Hornafjörður óskar eftir tilboðum í gatnagerð við Sandbakka