Flýta viðhaldi gangstéttar eftir slysið
Viðhaldi á illa útilátinni gangstétt í Rimahverfi í Grafarvogi verður hrundið af stað á næstu dögum í kjölfar slyss sem varð um helgina.
Þetta kemur fram í svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn mbl.is.
Soffía Jóhannesdóttir, 93 ára íbúi á hjúkrunarheimilinu Eir, átti leið um gangstéttina og féll fram fyrir sig úr hjólastól er annað framhjól stólsins festist í einni af fjölmörgum sprungum gangstéttarinnar.
Var á áætlun
Soffía marðist í andliti en slapp við alvarlega áverka á borð við beinbrot og heilahristing.
Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg voru viðgerðir og viðhald á þessari tilteknu gangstétt nú þegar á áætlun í sumar og hefur þeim verið flýtt vegna slyssins.
Mælingar áttu að hefjast í dag en gætu tafist vegna veðurs, en það er rigning í kortunum.
Heimild: Mbl.is












