Home Fréttir Í fréttum Tap þriðja árið í röð en mikill rekstrarbati

Tap þriðja árið í röð en mikill rekstrarbati

85
0
Tap þriðja árið í röð en mikill rekstrarbati
Ljósmynd: Kristinn Magnússon

Tap þriðja árið í röð en mikill rekstrarbati

Malbikunarstöðin Höfði, sem er í eigu borgarinnar, tapaði 16 milljónum króna í fyrra.

Malbikunarstöðin Höfði, dótturfélag Reykjavíkurborgar, tapaði 16 milljónum króna á árinu 2025, samanborið við 215 milljóna króna tap árið áður.

Samanlögð afkoma félagsins á síðastliðnum sex árum er neikvæð um 250 milljónir króna.

Velta Malbikunarstöðvarinnar Höfða jókst um 90% milli ára, eða um 888 milljónir, og nam 1.865 milljónum króna. Velta félagsins hefur ekki verið meiri frá árinu 2019. Rekstrargjöld jukust um 50% og námu 1.838 milljónum króna.

Rekstarafkoma félagsins fór úr því að vera neikvæð um 248 milljónir króna í að vera jákvæð um 27 milljónir.

Í skýrslu stjórnar í ársreikningi félagsins segir að mikil samkeppni sé í framleiðslu á malbiki sem hafi haft áhrif á sölu.

„Samdráttur í opinberum og einkareknum framkvæmdum, ásamt háu vaxtastigi og verðbólgu, hefur dregið úr uppbyggingu og viðhaldi vega og gatna. Þrátt fyrir það náði félagið að auka tekjur sínar umtalsvert. Félagið gerir ráð fyrir auknum verkefnum næstu árin með aukinni framlegð.“

Stjórn Höfða lagði fram tillögur að fjárhags- og starfsáætlun fyrir næsta starfsár sem miðar við að tekjur verði um 2 milljarðar króna og áætlað EBITDA 200 milljónir króna.

Eignir félagsins námu 1,7 milljörðum króna og eigið fé nam rúmlega 1,2 milljörðum króna í árslok 2025.

Kostnaðarsamir flutningar

Starfsemi Höfða var á Sævarhöfða 6-10 en unnið hefur verið að flutningum yfir á lóð að Álhellu 34 í Hafnarfirði sem félagið keypti árið 2021. Fyrsta framleiðsla hófst þar í maí 2022.

Í ársreikningi Höfða, sem undirritaður var 30. mars sl. segir að flutningi á framkvæmdadeild og skrifstofu Höfða hafi verið frestað tímabundið og ákveðið að brottflutningi ljúki vorið 2026.

„Flutningar starfseminnar hefur verið kostnaðarsöm og flókin framkvæmd sem hefur gengið verulega á eigið fé félagsins. Enn er eftir að rífa örfá mannvirki á lóðunum að Sævarhöfða og verður það klárað sumarið 2026.“

Heimild: Vb.is