Home Fréttir Í fréttum Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ

Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ

21
0
Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ
Staurarnir sem skaga upp úr sænum við mynni Fossvogs marka ákveðinn áfanga í framkvæmdinni – loksins má sjá útlínu Fossvogsbrúar frá landi. mbl.is/Þorgeir

Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ

Framkvæmdum við Fossvogsbrú miðar vel áfram að sögn yfirverkstjóra og eru nú komnar á það stig að sjá má burðarverk brúarinnar skaga upp úr lygnu hafi milli Kársness og Skerjafjarðar.

Hér má sjá kranann sem notaður var við stýringar á hinum 70 cm sveru stálrörum. mbl.is/Eyþór

Allir staurarnir eru komnir niður landmegin í Kársnesi í hinu svokallaða landkari, þar sem brúin kemur á land, og segir yfirverkstjóri framkvæmdarinnar, Guðjón Örn Björnsson, vel hafa gengið að koma þeim niður.

Næsta skref framkvæmdarinnar er að setja átta metra löng og fimmtán metra breið þurrkví utan um staurana svo hægt verði að steypa neðansjávargrunn brúarinnar og gera hana trausta.

Á næsta ári verður undirstöðum brúarinnar komið fyrir, en þær eru nú í smíði í Póllandi. mbl.is/Þorgeir

Verklok áætluð eftir tvö ár

Verkið er hluti af fyrstu lotu borgarlínu og uppbyggingu fyrir þróunarsvæði í Skerjafirði, en vinna við landfyllingar hófst í janúar síðasta árs Kársnesmegin.

Áætlað er að sjálfar undirstöður brúarinnar komi til landsins frá Póllandi, þar sem þær eru nú í smíðum, um miðbik næsta árs ásamt öðrum hlutum brúarinnar sem lagðir verða á undirstöðuna sama ár.

Brúin mun liggja frá Kársnesi að vallarmærum Reykjavíkurflugvallar. mbl.is/Þorgeir

Ítarlega útlistun Morgunblaðsins á næstu skrefum verksins má nálgast í greininni hér að neðan, en eins og áður hefur komið fram eru verklok við byggingu brúarinnar áætluð þann 16. júní árið 2028.

Heimild: Mbl.is

Efni: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ