Home Fréttir Í fréttum Íslenskir aðalverktakar valdir til að hanna og byggja þjóðarhöll

Íslenskir aðalverktakar valdir til að hanna og byggja þjóðarhöll

136
0
Íslenskir aðalverktakar valdir til að hanna og byggja þjóðarhöll
Teikning af fyrirhugaðri þjóðarhöll. Aðsend – Þjóðarhöll ehf.

Íslenskir aðalverktakar valdir til að hanna og byggja þjóðarhöll

Þjóðarhöll ehf. hefur gengið að tilboði Íslenskra aðalverktaka og samstarfsfyrirtækja þeirra um hönnun og byggingu þjóðarhallar í Laugardal. Tilboðið hljóðar upp á 16,8 milljarða króna.

Íslenskir aðalverktakar og samstarfsfyrirtæki þeirra sjá um hönnun og byggingu þjóðarhallar í Laugardal í Reykjavík. Þar á að verða framtíðaraðstaða fyrir íþróttakeppni og iðkun.

Þjóðarhöll, sem heldur utan um verkefnið fyrir ríki og borg, gekk að tilboði Íslenskra aðalverktaka, ASK arkitekta, COWI, LPO arkitekta, Íslofts, EOH og Landhönnunar. Það hljóðar upp á 16,8 milljarða króna. Þau kepptu við Ístak og tengd fyrirtæki um verkefnið.

Teikning af því hvernig Þjóðarhöllin gæti litið út á leikdegi.
Aðsend / Þjóðarhöll ehf.

Þrettán manna matsnefnd mat tilboðin á grundvelli 32 matsliða, þar á meðal til hönnunar, notagildis, útlits, frágangs, aðgengis, sjálfbærni og hagkvæmni.

Myndband frá hönnuðum að ofan sem sýnir hvernig þjóðarhöllin myndi líta út.

Þjóðarhallar hefur lengi verið beðið. Laugardalshöllin uppfyllir ekki kröfur til alþjóðlegrar keppni og hefur því þurft að leika landsleiki annars staðar. Þjóðarhöllin á að rísa sunnan Laugardalshallar og tengjast borgarlínu, göngu- og hjólaleiðum auk þeirra mannvirkja sem fyrir eru: Laugardalshallar og Frjálsíþróttahallar við hlið hennar.

Teikning af því hvernig Þjóðarhöllin gæti litið út við hlið Laugardalshallar.
Aðsend / Þjóðarhöll ehf.

Samkvæmt tilkynningu frá Þjóðarhöll ehf. tekur nú við lögbundinn biðtími þar sem fyrirtækin sem buðu í verkið geta kynnt sér niðurstöðuna og gert athugasemdir eða kært hana áður en hægt er að ganga frá samningi.

 

 

Veitingaaðstaða gæti verið með þessum hætti í anddyri þjóðarhallar.
Aðsend / Þjóðarhöll ehf.
Teikning af fyrirhuguðu útliti þjóðarhallar.
Aðsend / Þjóðarhöll ehf.
Teikning hönnuða af hugsanlegum körfuboltaleik.
Aðsend / Þjóðarhöll ehf.

Heimild: Ruv.is

Efni: Íslenskir aðalverktakar valdir til að hanna og byggja þjóðarhöll