Home Fréttir Í fréttum 15.07.2026 Múlaþing býður út stækkun Grunnskóla Seyðisfjarðar

15.07.2026 Múlaþing býður út stækkun Grunnskóla Seyðisfjarðar

33
0
Múlaþing býður út stækkun Grunnskóla Seyðisfjarðar

Múlaþing býður út stækkun Grunnskóla Seyðisfjarðar

Múlaþing hefur auglýst útboð vegna umfangsmikillar stækkunar Grunnskóla Seyðisfjarðar við Skólaveg 1. Verkefnið felur í sér um 830 fermetra viðbyggingu ásamt fullnaðarfrágangi innan- og utanhúss og lóðarfrágangi.

Framkvæmdin snýr að stækkun skólans í tvær áttir. Annars vegar verður reist viðbygging til norðurs í sama útliti og núverandi skólahús, ásamt tengibyggingu við íþróttahúsið. Hins vegar verður byggð ný tengibygging til suðurs sem tengist nýrri viðbyggingu.

Nýbyggingin verður reist á steyptum undirstöðum með steyptum plötum og veggjum, ásamt stálbitum og stálsúlum og timburþakvirki. Heildarstærð stækkunarinnar verður um 830 fermetrar brúttó.

Verkið felur í sér:

  • Jarðvinnu
  • Uppsteypu mannvirkisins
  • Fullnaðarfrágang utanhúss
  • Fullnaðarfrágang innanhúss
  • Frágang lóðar

Verkkaupi leggur sérstaka áherslu á vandaða umgengni um framkvæmdasvæðið á framkvæmdatíma.

Framkvæmdir geta hafist strax að lokinni samningsgerð og skulu vera að fullu lokið fyrir 15. júlí 2028.

Helstu magntölur verksins

Verkþáttur Magn
Uppgrafið efni 2.150 m³
Mótasmíði 2.766 m²
Steinsteypa 450 m³
Utanhússklæðning 320 m²
Þakfrágangur 830 m²
Málun innanhúss 2.136 m²
Frárennslislagnir 230 m
Gólfhitalagnir 1.600 m
Loftstokkar í loftræsikerfi 515 m

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með 15. júní 2026. Þeir sem óska eftir gögnum skulu senda beiðni á netfangið signy@teknik.is og tilgreina nafn fyrirtækis, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og netfang.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Múlaþings að Lyngási 12 á Egilsstöðum fyrir klukkan 14:00 fimmtudaginn 23. júlí 2026. Tilboðin verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Heimild: Múlaþing

Efni:bMúlaþing býður út stækkun Grunnskóla Seyðisfjarðar

 

„Leitar þú að verktaka? Skoðaðu fyrirtækjaskrá VERKTAKAR.IS”