Sambyggð 14 í Þorlákshöfn: Viðhald og Endurbætur 2026
Húsfélagið Sambyggð 14 í Þorlákshöfn óskar eftir tilboðum í verkið:
SAMBYGGÐ 14 ÞORLÁKSHÖFN – VIÐHALD OG ENDURBÆTUR 2026
Um er að ræða viðhald og endurbætur utanhúss á húsinu.
Verkið felst í að rífa eldri klæðningar, grafa fyrir og steypa undirstöður undir gluggakerfi, steypa stéttar, stækka svalir, setja upp nýjar svalalokanir o.fl.
Verklok eru 8. apríl 2027
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginum 15. júní 2026. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Guðmund Hjaltason á skrifstofu Eflu á Suðurlandi í síma 412 6900, eða með tölvupósti í netfangið gudmundur.hjaltason@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Eflu hf að Austurvegi 1-5 á Selfossi fyrir kl. 14.00 þriðjudaginn 30. júní 2026. og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Húsfélagið að Sambyggð 14, Þorlákshöfn
„Leitar þú að verktaka? Skoðaðu fyrirtækjaskrá VERKTAKAR.IS”












