Home Fréttir Í fréttum Þjónustumiðstöð Vegagerðarinnar í Fellabæ sú fyrsta sem er endurnýjuð

Þjónustumiðstöð Vegagerðarinnar í Fellabæ sú fyrsta sem er endurnýjuð

36
0
Þjónustumiðstöð Vegagerðarinnar í Fellabæ sú fyrsta sem er endurnýjuð
Framkvæmdir hafa frá síðasta hausti staðið yfir við þjónustumiðstöðina. Mynd: GG

Þjónustumiðstöð Vegagerðarinnar í Fellabæ sú fyrsta sem er endurnýjuð

Framkvæmdir hafa staðið yfir í vetur við húsnæði þjónustumiðstöðvar Vegagerðarinnar í Fellabæ. Hún er fyrsta miðstöðin sem fær slíka yfirhalningu en gert er ráð fyrir að aðrar fylgi í kjölfarið.

Þjónustumiðstöðin við Smiðjusel í Fellabæ var byggð árið 1983. Um er að ræða stálgrindarhús með þremur bilum þar sem miðjubilið var starfsmannaaðstaða.

Loftur Þór Jónsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Austurlandi, segir að tímabært hafi verið að endurnýja húsið, eins og aðrar þjónustumiðstöðvar sem byggðar voru á þessum tíma. „Tímarnir breytast, ekkert húsanna var til dæmis með lyftu,“ útskýrir hann.

Starfsfólk Vegagerðarinnar á Austurlandi ásamt vegamálastjóra, sem kom til að skoða framkvæmdirnar, um miðjan maí. Mynd: GG

Hann segir réttara að tala um endurbyggingu frekar en viðhald á starfsmannaaðstöðunni. Steypt hefur verið í gólf og nýjar lagnir lagðar. Skrifstofuaðstaða hefur verið búin til á efri hæðinni, þar sem framvegis verður meðal annars rými fyrir starfsmenn af öðrum starfsstöðvum Vegagerðarinnar til vinnu.

Lítil tengibygging hefur verið byggð milli starfsmannaaðstöðunnar og verkstæðishlutans, en áður þurfti að fara út til að fara þar á milli. Ytra byrði hússins hefur einnig verið endurnýjað að hluta. „Það kemur ýmislegt í ljós þegar farið er að eiga við svona gömul hús. Hér hefur orðið til reynsla sem hægt verður að nýta á öðrum þjónustumiðstöðvum.“

Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki um næstu mánaðamót.

Heimild: Austurfrett.is

Efni: Þjónustumiðstöð Vegagerðarinnar í Fellabæ sú fyrsta sem er endurnýjuð