Home Fréttir Í fréttum Rafal að kaupa Bergraf

Rafal að kaupa Bergraf

90
0
Rafal að kaupa Bergraf
Valdimar Kristjónsson, forstjóri Rafal, og Guðmundur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Bergraf. Ljósmynd: Aðsend mynd

Rafal að kaupa Bergraf

„Með þessari sameiningu verðum við komin með landsliðið í gatnalýsingu,“ segir forstjóri Rafal.

Rafverktakafyrirtækið Rafal ehf. og eigendur Bergraf ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Rafal á öllu hlutafé Bergrafs, með fyrirvara um endanlegan frágang viðskiptanna.

„Markmið kaupanna er að styrkja enn frekar þjónustu og þekkingu á sviði gatnalýsingar, rafmagns og tengdra innviða,“ segir í tilkynningu á vef Rafal.

„Starfsemi Bergraf mun renna inn í Rafal og þannig skapast öflugri heild með aukna getu til að þjónusta viðskiptavini og takast á við fjölbreytt og umfangsmikil verkefni.“

Kaupin eru háð hefðbundnum fyrirvörum, þar á meðal samþykki Samkeppniseftirlitsins og fullnægjandi niðurstöðu áreiðanleikakönnunar.

Bergraf mun halda áfram rekstri sínum með óbreyttum hætti á meðan áreiðanleikakönnun stendur yfir. Gert er ráð fyrir að viðskiptin gangi formlega í gegn þegar öll skilyrði hafa verið uppfyllt.

„Við hjá Rafal erum gríðarlega spennt fyrir þessu tækifæri en með þessari sameiningu verðum við komin með landsliðið í gatnalýsingu. Við hlökkum mikið til að bjóða starfsfólk Bergraf hjartanlega velkomin í ört stækkandi hóp Rafal,” segir Valdimar Kristjónsson, forstjóri og eigandi Rafal.

Rafal er stærsta rafverktakafyrirtæki landsins miðað við veltu, samkvæmt úttekt í 500 stærstu, riti Frjálsrar verslunar. Félagið velti 4,3 milljörðum króna og hagnaðist um 306 milljónir króna árið 2024. Eignir Rafal námu rúmum 1,2 milljörðum króna og eigið fé var um 450 milljónir króna í lok árs 2024, samkvæmt síðasta birta ársreikningi félagsins.

Bergraf velti 478 milljónum króna og hagnaðist um 39 milljónir króna á árinu 2025. Velta félagsins dróst saman um 14% milli ár. Eignir Bergrafs námu 410 milljónum króna og eigið fé var 131 milljón króna í lok síðasta árs.

Guðmundur Jóhannsson er stærsti eigandi Bergrafs með 49% hlut samkvæmt fyrirtækjaskrá Skattsins. Þar á eftir kemur Tómas Guðmundsson með 38% hlut. Atli Már Ragnarsson á 5% hlut í félaginu.

Heimild: Vb.is

Efni: Rafal að kaupa Bergraf