Home Fréttir Í fréttum Fjórðungur íbúða verið til sölu í meira en ár

Fjórðungur íbúða verið til sölu í meira en ár

17
0
Fjórðungur íbúða verið til sölu í meira en ár
Ljósmynd: Sigurður Bogi Sævarsson

Fjórðungur íbúða verið til sölu í meira en ár

Tæplega fjórðungur íbúða á söluskrá hefur verið á sölu í meira en ár.

Tæplega fjórðungur allra íbúða sem auglýstar voru til sölu í upphafi júnímánaðar hafa verið á söluskrá í meira en 12 mánuði og um 5% þeirra hafa verið til sölu í meira en tvö ár.

Hlutfallið hefur aukist talsvert undanfarið ár. Í júní 2025, til samanburðar, hafði um 16% íbúða verið á söluskrá í meira en eitt ár og aðeins 2,5% í meira en tvö ár. Þetta kemur fram í frétt á vef HMS.

Tæplega 6.200 íbúðir voru auglýstar á landinu í upphafi júní en framboð íbúða hefur aukist mikið síðustu misseri. Á sama tíma hefur íbúðamarkaður kólnað og kaupsamningum fækkað.

Íbúðir í sölu í dag hafa verið töluvert lengur á söluskrá en þekkst hefur á síðustu árum. Miðgildi auglýsingatíma virkra fasteignaauglýsinga er í dag í kring um 142 dagar sem er aukning frá 98 dögum í fyrra og 68 dögum árið 2024.

Færri kaupsamningar

Kaupsamningum fækkaði um 25% milli mánaða í apríl, en fækkunin nemur 8% þegar tekið er tillit til færri virkra daga vegna páska. Alls var 758 kaupsamningum þinglýst í apríl, samanborið við rúmlega þúsund í mars.

m

Kaupsamningar í aprílmánuði eru alla jafna nokkuð fleiri, jafnvel þegar leiðrétt hefur verið fyrir fjölda virkra daga. Vert er þó að hafa í huga að árið 2024 var frábrugðið öðrum árum, þar sem páskar féllu í mars það ár og Fasteignafélagið Þórkatla stóð að kaupum á eignum í Grindavík.

Heimild: Vb.is

Efni: Fjórðungur íbúða verið til sölu í meira en ár